Í dag er frí í skólanum hjá krökkunum. Við vitum reyndar ekkert afhverju en þjóðhátíðardagur Spánverja var í gær.
Á föstudag rigndi og rigndi. Við Hörður löbbuðum í skólann í úrhelli, hann var í regnslánni, ég með regnhlíf sem alltaf var að fjúka upp. Ég fékk svo regnslána hjá honum og rölti á pósthúsið og sækja pakka. Við vorum búin að gera okkur vonir um að það væri afmælispakki handa Herði Tryggva, en það reyndist nú skólabók handa mér sem ég var viss um að pósturinn væri búin að týna. Svo vonandi fáum við pakkatilkynningu í dag með afmælispakka :) Annars er ekki rigning í dag, þannig að miðað við ég hef bara farið á póstinn í úrhellis rigningu þá fáum við hann sennilega ekki í dag. Og eftir þennan rigningar og rok dag þá eru báðar regnhlífarnar okkar ónýtar, þola ekki að fjúka svona oft upp. Seinnipartinn rölti ég á móti Herði yfir engið. Það var vel blautt, greinilega búið til úr leir. Skórnir mínir voru eins og snjóþrúgur, það hlóðst svo utaná þá. Ég var í hálftíma hérna út að sprauta á Harðar skó þangað til þeir voru orðnir nógu "hreinir" til að setja þá í þvottavélina.
Á laugardag fengum við gesti frá Íslandi. Valgeir, bróðir Halla og Jóhanna konan hans komu frá Torremolinos þar sem þau eru í fríi. Við grilluðum þetta fína lambakjöt og lauk :). Halli fylgdi þeim svo í strætó. Rosalega gaman að fá svona gesti sem eru svona góðir í íslensku :)
Sunnudagur var letidagur. Öll fjölskyldan fór í Bowen meðferð hérna heima. Ég verð nú að æfa mig.
Í dag erum við að læra. Hörður er búinn að lesa heila bók upphátt fyrir mig. Svaka fínn framburður hjá honum, en við skildum nú ekki mikið. Ég á að skila verkefni á fimmtudag og öðru á mánudag svo það er nóg að gera. Sólrún þarf að læra fyrir próf í hálfgerðri landafræði. Hún er að læra um lengdar- og breiddargráður og fleira í þeim dúr.
Gott í bili
13 október 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Oh, bara alltaf rigning hjá ykkur. Og EKKI NEMA 16 stiga hiti þegar þetta er skrifað (og -3 á Akureyri).
Þið þurfið nú að fara að læra tungumálið, http://wordreference.com/ - hér er siða sem ég nota mikið :) hægt að sjá margar beygingarmyndir líka, ef maður ýtir á conjugator ofarlega á síðunni eftir að maður leitar að orði :)
Bíð enn spennt eftir myndum
:o) gaman að lesa fréttir frá útlandinu...
Skrifa ummæli