22 september 2008

Skiladagur verkefnis tvö á þessari önn :)

Jæja, þetta gengur svona líka glæsilega. Hópverkefnið sem átti að skila í kvöld, komið ;). Undirbúningur fyrir næstu tvö verkefni hafinn, enda veitir ekki af, næsta á miðvikudag.
Það er vinnuhelgi á Bifröst um næstu helgi og ég verð bara heima með tölvuna í fanginu og reyni að fylgjast með. Skype-ið, tölvusíminn, msn-ið og námskjárinn ættu að duga.
Halli fór með krakkana í risa-sandkassa (ströndina) eins og Hörður kallar það í gær á meðan ég var heima að læra.
OG ekki nóg með að maður skemmti sér við að horfa á maura hér á veröndinni. Þegar ég kíkti út um miðjan dag í gær sá ég SLÖNGU á hraðferð meðfram húsinu!! Hún flýtti sér reyndar svo mikið að ég náði nú ekki að skoða hana almennilega. Hún var nú ekkert stór, kannski 30 cm eða svo. Ég náttúrulega gúglaði um leið og ég kom inn og er ekki frá því að þetta fyrirbæri kallist Horseshoe Wipe Snake. Það var allavega ekki ólíkt þessari mynd.

Það verður spennandi að sjá hvaða dýr kemur næst!!
Annars er margt að sjá hérna fyrir utan. Í gær missti ég af því að sjá tvo menn í fallhlífum lenda hérna á opna svæðinu við húsið. Sá bara þegar þeir voru að taka saman dótið sitt.

Krakkarnir fengu far í skólann í morgun því Halli var með bíl í láni. Herði fannst það nú óþarfi, finnst betra að labba í hálftíma en að rúnta kringum skólann í leit að bílastæði. Hann þuldi upp fyrir mig sex sinnum töfluna á þremur tungumálum á leiðinni heim. Hann er byrjaður í aukatímum í spænsku í skólanum. Sólrún fékk líka spænskubók fyrir byrjendur í dag og bekkjarsystur sem talar ensku til að hjálpa sér með hana.

En í fyrramálið þá verður enn og aftur rölt af stað í skólann. Einhvers staðar las ég að það taki mann þrjár vikur að verða háður einhverju. Nú erum við búin að vera hér í rúmar þrjár vikur, röltum allt sem við þurfum að fara (svotil) og ég er ekki frá því að ég sé að verða háð gönguferðum. Enda kannski ekkert skrítið þegar ég sé aukakílóin hverfa eitt af öðru :) og finn breytingu á úthaldinu ;)
Gott í bili

2 ummæli:

Tinna sagði...

Jahá, það er ekkert annað, maurar og slöngur, og eru ekki naut þarna rétt hjá á opna svæðinu? Eða geitur kannski. Það er örugglega bara fínt að vera háður gönguferðum, skárra en að vera háður bíl!

Adios

Unknown sagði...

Já hefði ekki trúað því en mér finnst slæmt að missa af tveim tímum í æfingum þessa vikuna .......en ég bara verð ekki á svæðinu ENnnnnnnn stefni á gönguferðir í staðinn til að svindla ekki á sjálfri mér.
Pöddur og ógeð hjá þér ojjjjj