Úps, maður nennir bara ekkert að blogga þessa dagana!!
Lítið nýtt að frétta, lífið gengur sinn vanagang.
Reyndar hefur heldur dregið úr mínum gönguferðum. Nú erum við nefnilega farin að passa Sölva eftir skóla sem þýðir að Silvía kemur og sækir Hörð á morgnanna og skutlar honum í skólann og kemur svo með báða strákana hingað seinnipartinn.
Svo nú verð ég að fara að finna mér aðra leið til að ná burt þessum fáu aukakílóum sem eftir eru :)
Ég rölti á pósthúsið á fimmtudaginn að sækja afmælispakka handa Herði Tryggva frá Helgu systur minni. Þetta var þessi fíni pakki með miða sem á stóð hvað væri í pakkanum. Og hvað haldið þið...það stóð SÚKKULAÐI á honum meðal annars. Mér fannst nú ekkert sérstaklega auðvelt að hafa þennan pakka hérna óopnaðan. Beið spennt eftir að Hörður kæmi heim úr skólanum. Og í þessum fína flotta pakka var þetta líka dásamlega fína NÓA-SÍRÍUS SUÐUSÚKKULAÐI...uummmm, svo dásamlega gott. Við vorum ekki lengi að klára það. Og ég hringdi í Helgu til að segja henni að hún væri uppáhalds systir mín.
Öllum er frjálst að taka þátt í uppáhaldskeppninni....við tökum endalaust við Nóa -Síríus :) :)
Þegar Hörður var veikur misstum við af því að fara á foreldrafund í hans skóla. Við komumst að því í síðustu viku að vegna veikinda kennara þá er hann ekki lengur í aukatímum í spænsku. Hann hélt að nýji afleysingakennarinn hans væri bara svona leiðinleg að leyfa honum ekki að fara í aukatímana. Við áttum víst að skrá hann í aukatíma á þriðjudögum og fimmtudögum eftir skóla. En þegar við loksins vorum búin að frétta þetta þá var orðið fullt í nóvember svo hann kemst ekki fyrr en í desember. Óttalegt vesen.
Nú er farið að kólna hjá okkur. Spánverjar virðast mikið notast við arinn eða stromp eins og Belinda vinkona mín kallaði það. Maður finnur alveg brunalyktina hérna úti á kvöldin, greinilega verið að kynda með arni víða. Við notum nú bara rafmagnskyndinguna enn sem komið er.
Gott í bili
09 nóvember 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Spánverjar eru svo klikk, ruglað lið!
Til hamingju með súkkulaðið... ég þarf ekki að senda súkkulaði til að vita að ég er lang mest í uppáhaldi hjá ykkur ;)
-Tinna
Bara kvitta hérna svo þú vitir að ég les alltaf bloggið þitt :) passaðu þig að panta ekki of mikið af súkkulaðinu það er f..andi ;) gangi ykkur öllum vel Jóhanna mín. Bestu kveðjur,
Harpa frænka :)
Vantar fleiri myndir
Kveðja, súkkulaðiungi
Skrifa ummæli