09 nóvember 2008

Bloggleti

Úps, maður nennir bara ekkert að blogga þessa dagana!!

Lítið nýtt að frétta, lífið gengur sinn vanagang.

Reyndar hefur heldur dregið úr mínum gönguferðum. Nú erum við nefnilega farin að passa Sölva eftir skóla sem þýðir að Silvía kemur og sækir Hörð á morgnanna og skutlar honum í skólann og kemur svo með báða strákana hingað seinnipartinn.
Svo nú verð ég að fara að finna mér aðra leið til að ná burt þessum fáu aukakílóum sem eftir eru :)

Ég rölti á pósthúsið á fimmtudaginn að sækja afmælispakka handa Herði Tryggva frá Helgu systur minni. Þetta var þessi fíni pakki með miða sem á stóð hvað væri í pakkanum. Og hvað haldið þið...það stóð SÚKKULAÐI á honum meðal annars. Mér fannst nú ekkert sérstaklega auðvelt að hafa þennan pakka hérna óopnaðan. Beið spennt eftir að Hörður kæmi heim úr skólanum. Og í þessum fína flotta pakka var þetta líka dásamlega fína NÓA-SÍRÍUS SUÐUSÚKKULAÐI...uummmm, svo dásamlega gott. Við vorum ekki lengi að klára það. Og ég hringdi í Helgu til að segja henni að hún væri uppáhalds systir mín.
Öllum er frjálst að taka þátt í uppáhaldskeppninni....við tökum endalaust við Nóa -Síríus :) :)

Þegar Hörður var veikur misstum við af því að fara á foreldrafund í hans skóla. Við komumst að því í síðustu viku að vegna veikinda kennara þá er hann ekki lengur í aukatímum í spænsku. Hann hélt að nýji afleysingakennarinn hans væri bara svona leiðinleg að leyfa honum ekki að fara í aukatímana. Við áttum víst að skrá hann í aukatíma á þriðjudögum og fimmtudögum eftir skóla. En þegar við loksins vorum búin að frétta þetta þá var orðið fullt í nóvember svo hann kemst ekki fyrr en í desember. Óttalegt vesen.

Nú er farið að kólna hjá okkur. Spánverjar virðast mikið notast við arinn eða stromp eins og Belinda vinkona mín kallaði það. Maður finnur alveg brunalyktina hérna úti á kvöldin, greinilega verið að kynda með arni víða. Við notum nú bara rafmagnskyndinguna enn sem komið er.
Gott í bili

02 nóvember 2008

Nýr mánuður...

Jæja nú erum við búin að vera hér í rúma tvo mánuði í sólinni og blíðunni og úrhellisrigningunni.

Það hefur ekki rignt neitt smá undanfarið. Nóg að gera við að reyna að þurrka föt og skó.

Á föstudaginn þegar við Hörður vorum að labba upp brekkuna þá gátum við alveg séð hvernig árfarvegir myndast, það streymdi niður götuna. Halli tók myndir í skólanum hans Harðar þar sem vatnið fossaði fram af steyptum vegg og af fótboltavellinu sem breyttist í sundlaug. (set þær inn aðeins síðar :( )
Annar skemmtum við okkur við það fyrripart vikunnar að taka samræmdu prófin. Bæði Sólrún og Hörður hefðu átt að taka samræmd próf í október. Við fundum eldri próf á netinu og þau tóku þau óundirbúið. Og einkunnirnar þeirra voru sko meira en glæsilegar. Hörður fékk 9,6 í stærðfræðinni og rúmlega níu í íslensku, Sólrún fékk rúmlega níu í stærðfræði og um átta í íslensku :) Mér finnst þetta snilld, eins og ég var að segja þeim, ef þau hefðu nú lært fyrir þessi próf eins og þau hefðu gert heima þá hefðu þau ábyggilega fengið a.m.k. 11. Þetta eru bara snillingar !!

Spænskan hjá þeim er öll að koma, þau eru farin að slá um sig með spænskum setningum sem við foreldrarnir vitum ekkert hvað þýða.

Það er farið að kólna svolítið hérna hjá okkur, hefur alveg farið niður í 6 stiga hita snemma á morgnanna, en hlýnar nú jafnvel upp í 20 þegar líður á daginn. Við þurfum að fara að verða okkur út um eldivið í arininn til að hlýja svolítið húsið. Annars erum við með rafmagnskyndingu sem allir segja okkur að við megum ekki nota ef mikið því rafmagnið sé svo dýrt. Svo í staðinn fyrir að hafa kyndinguna of mikið í gangi þá bara situr maður með teppi utanum sig....það er nú líka alltaf svo notalegt.
Gott í bili