Jahérna hér!! Það er bara allt í steik á Klakanum :( Það er búið að vera nóg að gera í dag að fylgjast með fréttum að heiman.
Annars einkenndist helgin af verkefnavinnu og svo aðeins meiri verkefnavinnu. Fíni tölvusíminn minn hefur ekki fengið mikið frí undanfarna daga. En þvílíkur lúxus að geta hringt ókeypis í bekkjarsystur mínar til að spjalla um verkefnin. Ég er BÚIN að skila tveimur einstaklingsverkefnum í dag og hópverkefnið okkar er í endanlegum yfirlestri og verður skilað von bráðar. Eins og staðan er í dag lítur út fyrir að skila eigi næsta verkefni eftir heila TÍU daga. Smá tími til að gera eitthvað skemmtilegt ;)
Hörður var með hita um helgina þannig að hann var heima hjá mér á meðan Halli og Sólrún fóru í verslunarferð. Hann er enn með hósta en orðinn hitalaus, samt svolítið slappur og öðruvísi en hann er vanur að vera. Hann fer vonandi í skólann á morgun.
Halli fór á foreldrafund í skólanum hjá Sólrúnu og kyssti kennarann hennar (sem er btw kona!!). Næst ætla ég á foreldrafund! Hún hrósaði nú Sólrúnu og sagði hana góðan nemanda þó hún þekki hana nú ekki mikið hihi.
Engin ný gæludýr hafa látið sjá sig nýlega. Mér þótti nú athyglisvert að á sunnudaginn þá var 22 stiga hiti, sól og smá gola. Þegar ég sat úti þá allt í einu fór ég að spá að í að nú væri svakalega fínt veður og ég ætti nú kannski bara að fara í sólbað til tilbreytingar. Hef nefnilega ekkert farið í sólbað því það er alltaf svoooo heitt. En á sunnudag var bara eins og frábær dagur á Akureyri.
Gott í bili
06 október 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Hvusslass mann tókstu með þér, kyssandi kennara og svona! Ussususssusususus
Kommenta betur ef ég fæ myndir
Jóhann þó....ég treysti á að þú workir tanið!!! Hva langar þig svona að kyssa kvenmann???? :) haha. Kveðja Soffía
HAHA...Harðar kennari er karlkyns og þar er foreldrafundur næst :)
halló, er nú bara að prófa þetta. Annars alltaf gaman að kíkja hingað inn og fá að fylgjast með. Var að fá að vita að ég á von á typpaling í febrúar og systurnar alsælar með það sem og auðvitað foreldrarnir;) Legg til að þið farið svo bara saman á foreldrafund næst...hehehe
Er með augun hjá þér öðru hvoru Jóhanna mín. Vona að Herði heilsist betur (en íslensku krónunni...)
Verð á speglun næstu 5-7 daga, einhver tips??
Kv, Anna Lísa
Skrifa ummæli