01 október 2008

Sól og blíða

Sólin kom aftur á mánudaginn.
Ég labbaði með Herði í skólann, tók regnhlífina með til vonar og vara. Var mætt eldsnemma í bankann til að stofna bankareikning. Halli var búinn að segja mér að ég yrði að tala við konu því strákurinn í bankanum kynni ekki ensku!. Ég beið og beið, konan var upptekin. Endaði á því að fara bara í röðina hjá stráknum og þegar kom að mér þá spurði ég hann hvort hann kynni ensku, hann neitaði því og kallaði á konuna. Hún kom. Þegar hún sá nafnið mitt og hvaðan ég væri þá spurði hún mig hvort ég væri nokkuð skyld herra Ingólfsson. Halli er greinilega svona eftirminnilegur:). Milli þess sem hún svarði í símann og hringdi nokkur símtöl afgreiddi hún beiðni mína um bankareikning. Þetta tók mig ekki nema 40 mínútur, að stofna reikning, leggja inn á hann og fá aðgang að einkabanka. Ég get reyndar ekki notað einkabankann fyrr en ég verð búin að afreka að fá mér spænskt gemsanúmer. Fæ nefnilega sendan staðfestingarkóda í síma og get ekki notað Halla síma. Hann á greinilega ekki að komast í þennan reikning, hahahaha!
Þegar þessu öllu var lokið rölti ég í vinnuna til Halla og þegar þangað kom fattaði ég að ég hafði gleymt regnhlífinni í bankanum, enda sól og blíða úti. Svo ég mátti fara aftur í bankann, bíða eftir að ná athygli einhvers til að benda á regnhlífina mína.
Svo var bara að fara heim, þrífa veröndina eftir alla rigninguna og þvo stórþvott þar sem þurrkurinn var kominn aftur.
Annars er ég bara að læra, á að skila þremur verkefnum á mánudag. Krakkarnir frekar fúlir yfir að komast ekki í tölvuna fyrir mér.
Hörður var heima í dag, kominn með hósta og var frekar druslulegur í morgun. En hann fer nú væntanlega í skólann á morgun samt. Enda þarf ég að fara í bankann og sækja nýja bankakortið mitt sem verður tilbúið á morgun ;).
Nýtt gæludýr birtist hér á mánudaginn, einhvers konar froskur með sogskál. Allavega sá ég hann hangandi á glerinu í stofuglugganum um hádegi. Hélt fyrst að þetta væri laufblað sem hefði fokið á glerið. En við nánari athugun þá kom í ljós að þetta "laufblað" var með augu og andaði. Svo bara hékk hann þarna og hreyfði sig ekki. Við kíktum á hann með reglulegu millibili, og ef maður horfði vel mátti sjá hann hreyfa aðeins munninn og anda af og til. Þegar kominn var háttatími og ég ætlaði að kíkja á hann var hann horfinn og ekkert hefur til hans spurst síðan.
Gott í bili, verið að vinna í myndasíðu á milli lærdómstarna.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Óþarfi að kaupa gæludýr greinilega, þau birtast bara.

Snjór í Reykjavík!!!