26 október 2008

Same old same old

Lítið að gerast þessa dagana, lífið gengur sinn vanagang. Halli að vinna, krakkarnir í skólanum og að reyna að læra svolítið heima, ég að læra eða dunda við gæluverkefnið mitt.

Hér er sól og rigning til skiptis, enginn snjór og færðin bara nokkuð góð. Hún verður reyndar stundum slæm á enginu í rigningunni. Leirinn hleðst utaná skóna og það tekur sko tíma að hreinsa þá.

Ég litaði á mér hárið í morgun, það átti að verða kastaníu BRÚNT en varð kastaníu RAUTT...vel rautt...það vill til að maður upplitast í sólinni...ætli ég verði þá ekki bara með appelsínugult hár eftir smá tíma. ;)

Vetrartíminn kom í nótt, þannig að nú fáum við að sofa aðeins lengur á morgnanna. Halli og Sólrún fara á fætur kl 6 að íslenskum tíma í stað kl 5 og við Hörður förum á fætur kl 7 að íslenskum tíma í stað kl 6. Allt annað líf fyrir svefnpurrku eins og mig.

Gott í bili

1 ummæli:

Unknown sagði...

Jahá orðin rauðhærð til hamingju með það hvernig væri þá að fá mynd af skvísunni á forsíðuna ?
hehe bestu kveðjur í sólina og sæluna hjá ykkur