Í morgun þegar við Hörður fórum loksins á fætur sáum við í tölvunni að það var ekki nema 31 stiga munur á hita í Marbella og á Akureyri, 21 stiga hiti hjá okkur, 10 stiga frost á Akureyri!! Sem þýðir að ef við ættum bíl á Spáni þá hefði samt EKKI þurft að skafa eða sópa snjó af í morgun. ;) Og núna klukkan þrjú hjá mér er enn 31 stiga munur, 28 í plús hjá mér, þrjú í mínus á Akureyri!!
Hörður Tryggvi er enn lasinn, var kominn með 38 stiga hita í gær og hóstar enn. Það eru líka astmahljóð í honum. Svo hann er heima í dag og ég komst ekki í bankann til að ná í fína bankakortið mitt...eyði þá bara engum dýrmætum evrum á meðan.
Verkefnavinna er í fullum gangi í dag. Er að hanna eyðublöð og setja saman skjölin sem við hópasystur höfum búið til.
Og um helgina er bara meiri verkefnavinna. Vonandi verður Hörður orðinn góður á morgun svo krakkarnir og Halli geti gert eitthvað skemmtilegt um helgina.
Gott í bili.
03 október 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Æ æ leitt að heyra , góðar batakveðjur til frænda :o)
Getur maður þá ekki bara kennt kuldanum um helv kvefið og pestina ...? ekki það að við erum eldhress og spræk eins og staðan er í dag.
Góða helgi...
Skrifa ummæli