20 október 2008

Fleiri myndir

Búin að setja inn októbermyndir hér til hliðar. Þar má sjá hluta af dýragarðinum okkar, mynd af gestum frá Íslandi (rafhlöðurnar í myndavélinni þurftu endilega að vera búnar), sundferð og gönguferð í afmælisveislu á laugardaginn.

Eðlan sem er í loftinu náðist á endanum og var hleypt út.

Annars erum við bara búin að vera í rólegheitunum. Ég að læra eins og svo oft áður, Halli að þýða eins og oft áður.

Krakkarnir eru í fríi í skólanum í dag. Spánverjar, sérstaklega á suður Spáni skilst mér eru duglegir í að færa frídaga sem lenda á helgi yfir á mánudag. Þeir eru sko ekkert að sleppa fríum. Vinkonan okkar í búðinni (sem eldar stundum fyrir okkur) segir að það séu hvergi fleiri frídagar á ári en á suður Spáni ;).

Silvía og Sölvi komu í gær og borðuðu með okkur KFC og Sölvi gisti hjá okkur.

Sólrún fór á fimmtudag í heimsókn til Önnu, dönsku skólasystur sinnar.

Annars er bara ekkert í fréttum, maður er meira að segja hættur að nenna að fylgjast
með kreppufréttum. Ákvað bara að fyrst búið er að fá vilyrði IMF þá sé þetta allt komið í lag og kreppuvesenið búið. Nú þarf bara að líta á björtu hliðarnar og vonast til að leikskólagæjarnir fari bara aftur í sandkassann þar sem þeir geta ekki gert neinn óskunda (nema kannski henda sandi í augun hver á öðrum).
Gott í bili

2 ummæli:

Unknown sagði...

Sýnist nú bara vera nóg um að vera hjá ykkur.....gott að heyra að vel gengur en segðu mér færðu konurnar í búðunum með þér heim til að elda ??? ( hahaha) er að spá í að prófa það hér í samkaup á eftir...thíthí

Nafnlaus sagði...

:)

Hef ekkert að segja, nema takk fyrir fleiri myndir! Verið svo dugleg með myndavélina ;D