26 október 2008

Same old same old

Lítið að gerast þessa dagana, lífið gengur sinn vanagang. Halli að vinna, krakkarnir í skólanum og að reyna að læra svolítið heima, ég að læra eða dunda við gæluverkefnið mitt.

Hér er sól og rigning til skiptis, enginn snjór og færðin bara nokkuð góð. Hún verður reyndar stundum slæm á enginu í rigningunni. Leirinn hleðst utaná skóna og það tekur sko tíma að hreinsa þá.

Ég litaði á mér hárið í morgun, það átti að verða kastaníu BRÚNT en varð kastaníu RAUTT...vel rautt...það vill til að maður upplitast í sólinni...ætli ég verði þá ekki bara með appelsínugult hár eftir smá tíma. ;)

Vetrartíminn kom í nótt, þannig að nú fáum við að sofa aðeins lengur á morgnanna. Halli og Sólrún fara á fætur kl 6 að íslenskum tíma í stað kl 5 og við Hörður förum á fætur kl 7 að íslenskum tíma í stað kl 6. Allt annað líf fyrir svefnpurrku eins og mig.

Gott í bili

20 október 2008

Fleiri myndir

Búin að setja inn októbermyndir hér til hliðar. Þar má sjá hluta af dýragarðinum okkar, mynd af gestum frá Íslandi (rafhlöðurnar í myndavélinni þurftu endilega að vera búnar), sundferð og gönguferð í afmælisveislu á laugardaginn.

Eðlan sem er í loftinu náðist á endanum og var hleypt út.

Annars erum við bara búin að vera í rólegheitunum. Ég að læra eins og svo oft áður, Halli að þýða eins og oft áður.

Krakkarnir eru í fríi í skólanum í dag. Spánverjar, sérstaklega á suður Spáni skilst mér eru duglegir í að færa frídaga sem lenda á helgi yfir á mánudag. Þeir eru sko ekkert að sleppa fríum. Vinkonan okkar í búðinni (sem eldar stundum fyrir okkur) segir að það séu hvergi fleiri frídagar á ári en á suður Spáni ;).

Silvía og Sölvi komu í gær og borðuðu með okkur KFC og Sölvi gisti hjá okkur.

Sólrún fór á fimmtudag í heimsókn til Önnu, dönsku skólasystur sinnar.

Annars er bara ekkert í fréttum, maður er meira að segja hættur að nenna að fylgjast
með kreppufréttum. Ákvað bara að fyrst búið er að fá vilyrði IMF þá sé þetta allt komið í lag og kreppuvesenið búið. Nú þarf bara að líta á björtu hliðarnar og vonast til að leikskólagæjarnir fari bara aftur í sandkassann þar sem þeir geta ekki gert neinn óskunda (nema kannski henda sandi í augun hver á öðrum).
Gott í bili

16 október 2008

Nú var sko trimmað.....

Búin með enn eitt verkefnið.
Og eins og sést hér til hliðar tókst mér að finna leið til að koma myndum inn á þessa síðu :)
Lenti í smá ævintýri í dag. Við erum búin að sitja um póstkassann að bíða eftir pakkatilkynningunni sem við áttum nú eiginlega von á að fá í síðustu viku. Ég var búin að fara að kíkja í kassann um hádegi og þá var enginn póstur kominn. Ég sá póstinn einhvern tíma koma um ellefu leytið og gerði því ráð fyrir að hann væri hér á svipðuðum tíma á hverjum degi. En enginn póstur um hádegi.
Svo klukkan tvö fór ég af stað að sækja Hörð í skólann. Þegar ég kom að hliðinu þá var pósturinn þar. Hann fletti í gegnum um bunkann sinn og næst aftasta bréfið var fína pakkatilkynningin mín!! Þá var klukkan um 14:10. Ég arkaði af stað og spáði í hvort ég myndi nú ná þessu, pósthúsið lokar kl 14:30 og þetta er ca 2 km að mestu leyti upp í móti. Ég gekk ansi rösklega, þegar ég kom í brekku niður i móti, þá HLJÓP ég, svo kom beygja og brekka upp í móti og enn hljóp ég, en samt ekki langt, hélt áfram að strunsa eins og skrattinn væri á eftir mér og viti menn: þegar ég kom inn á pósthúsið eldrauð í framan, másandi og blásandi þá vantaði klukkuna 3 mínútur í lokun. Ég fékk þennan líka fína pakka afhentan og stórt bros frá syni mínum þegar hann sá pakkann. Og í pakkanum leyndust þessar fínu bækur á íslensku, blöð með heilabrotum og hangman spil, meira að segja með spænskum staf (n með svona skrauti á).
Ég hitti spænsku vinkonu mína í morgun, hún talar fína ensku með breskum hreim. Maðurinn hennar vinnur í Hollandi að mig minnir. Hann var að fræða hana á því að það væri búið að loka Íslandi og þau komust að þeirri niðurstöðu að það væri ástæðan fyrir því að við erum hér. Ég sagði henni nú að það væri ekki búið að loka og við myndum alveg geta flutt til baka þegar við vildum. Það stæði ekki til að leggja Ísland niður.
Svona eru þá fréttirnar túlkaðar...eins gott að passa það sem fer í fjölmiðlana.
Jæja gott í bili, komin nótt hjá mér.

13 október 2008

Mánudagur-frídagur

Í dag er frí í skólanum hjá krökkunum. Við vitum reyndar ekkert afhverju en þjóðhátíðardagur Spánverja var í gær.
Á föstudag rigndi og rigndi. Við Hörður löbbuðum í skólann í úrhelli, hann var í regnslánni, ég með regnhlíf sem alltaf var að fjúka upp. Ég fékk svo regnslána hjá honum og rölti á pósthúsið og sækja pakka. Við vorum búin að gera okkur vonir um að það væri afmælispakki handa Herði Tryggva, en það reyndist nú skólabók handa mér sem ég var viss um að pósturinn væri búin að týna. Svo vonandi fáum við pakkatilkynningu í dag með afmælispakka :) Annars er ekki rigning í dag, þannig að miðað við ég hef bara farið á póstinn í úrhellis rigningu þá fáum við hann sennilega ekki í dag. Og eftir þennan rigningar og rok dag þá eru báðar regnhlífarnar okkar ónýtar, þola ekki að fjúka svona oft upp. Seinnipartinn rölti ég á móti Herði yfir engið. Það var vel blautt, greinilega búið til úr leir. Skórnir mínir voru eins og snjóþrúgur, það hlóðst svo utaná þá. Ég var í hálftíma hérna út að sprauta á Harðar skó þangað til þeir voru orðnir nógu "hreinir" til að setja þá í þvottavélina.
Á laugardag fengum við gesti frá Íslandi. Valgeir, bróðir Halla og Jóhanna konan hans komu frá Torremolinos þar sem þau eru í fríi. Við grilluðum þetta fína lambakjöt og lauk :). Halli fylgdi þeim svo í strætó. Rosalega gaman að fá svona gesti sem eru svona góðir í íslensku :)
Sunnudagur var letidagur. Öll fjölskyldan fór í Bowen meðferð hérna heima. Ég verð nú að æfa mig.
Í dag erum við að læra. Hörður er búinn að lesa heila bók upphátt fyrir mig. Svaka fínn framburður hjá honum, en við skildum nú ekki mikið. Ég á að skila verkefni á fimmtudag og öðru á mánudag svo það er nóg að gera. Sólrún þarf að læra fyrir próf í hálfgerðri landafræði. Hún er að læra um lengdar- og breiddargráður og fleira í þeim dúr.
Gott í bili

09 október 2008

Ótrúlegt vesen og vitleysa :(

Maður hangir bara yfir fréttunum, nóg að fylgjast með að heiman. Við erum í því að skoða gengið og spá í hvort rétt sé að taka pening út af vísa...sem var aðeins 228 krónur evran í gær, nota evrurnar sem við eigum nú þegar...millifæra á milli bankareikninga og fara í hraðbanka og taka út á 130kr....maður veit ekkert hvað gerist í hraðbankanum, hvaða gengi maður er að kaupa á....frekar pirrandi ástand.

Er ekki frá því að Geir sé að sjá um að við fitnum ekki aftur og eyðum ekki í vitleysu!!

Annars erum við að setja upp auglýsingu í dagblað hér til að auglýsa Bowenið mitt. Kominn tími til að ég fari að gera eitthvað skemmtilegt...og svo er náttúrulega kostur að fá greitt í verðmætum evrum :).

Lífið gengur sinn vanagang, krakkarnir í skólanum. Hörður tók próf í gær sem hann skrifaði ekkert á því hann vissi ekkert um hvað var verið að spyrja. Sólrún sat og horfði út í loftið þegar hennar bekkjarfélagar tóku próf. Kennarinn hennar sagði að hún þyrfti ekki að taka það. Nú er bara spurningin um að við (öll fjölskyldan) förum að leggjast yfir þessar skólabækur þeirra og komast að því hvað stendur í þeim.
Ég fann nú reyndar Öskju og Heklu í landafræðibókinni hennar Sólrúnar, tvö orð sem ég skildi fullkomlega :) En þetta kemur allt saman með kalda vatninu.

Nú fara Halli og Sólrún yfir engið á leið í skólann og krakkarnir koma þá leið heim. Það er aðeins styttra að labba og ekki brött brekka á leiðinni. Ég fylgist með hvort nautin eru hérna megin við veginn eða ekki þegar þau ætla að vera á ferðinni. Þessi naut eru nefnilega með svolítið stór horn og líta þess vegna hættulega út :)

Gott í bili

06 október 2008

Ástand á Klakanum :(

Jahérna hér!! Það er bara allt í steik á Klakanum :( Það er búið að vera nóg að gera í dag að fylgjast með fréttum að heiman.

Annars einkenndist helgin af verkefnavinnu og svo aðeins meiri verkefnavinnu. Fíni tölvusíminn minn hefur ekki fengið mikið frí undanfarna daga. En þvílíkur lúxus að geta hringt ókeypis í bekkjarsystur mínar til að spjalla um verkefnin. Ég er BÚIN að skila tveimur einstaklingsverkefnum í dag og hópverkefnið okkar er í endanlegum yfirlestri og verður skilað von bráðar. Eins og staðan er í dag lítur út fyrir að skila eigi næsta verkefni eftir heila TÍU daga. Smá tími til að gera eitthvað skemmtilegt ;)

Hörður var með hita um helgina þannig að hann var heima hjá mér á meðan Halli og Sólrún fóru í verslunarferð. Hann er enn með hósta en orðinn hitalaus, samt svolítið slappur og öðruvísi en hann er vanur að vera. Hann fer vonandi í skólann á morgun.

Halli fór á foreldrafund í skólanum hjá Sólrúnu og kyssti kennarann hennar (sem er btw kona!!). Næst ætla ég á foreldrafund! Hún hrósaði nú Sólrúnu og sagði hana góðan nemanda þó hún þekki hana nú ekki mikið hihi.

Engin ný gæludýr hafa látið sjá sig nýlega. Mér þótti nú athyglisvert að á sunnudaginn þá var 22 stiga hiti, sól og smá gola. Þegar ég sat úti þá allt í einu fór ég að spá að í að nú væri svakalega fínt veður og ég ætti nú kannski bara að fara í sólbað til tilbreytingar. Hef nefnilega ekkert farið í sólbað því það er alltaf svoooo heitt. En á sunnudag var bara eins og frábær dagur á Akureyri.

Gott í bili

03 október 2008

Heitt og kalt

Í morgun þegar við Hörður fórum loksins á fætur sáum við í tölvunni að það var ekki nema 31 stiga munur á hita í Marbella og á Akureyri, 21 stiga hiti hjá okkur, 10 stiga frost á Akureyri!! Sem þýðir að ef við ættum bíl á Spáni þá hefði samt EKKI þurft að skafa eða sópa snjó af í morgun. ;) Og núna klukkan þrjú hjá mér er enn 31 stiga munur, 28 í plús hjá mér, þrjú í mínus á Akureyri!!
Hörður Tryggvi er enn lasinn, var kominn með 38 stiga hita í gær og hóstar enn. Það eru líka astmahljóð í honum. Svo hann er heima í dag og ég komst ekki í bankann til að ná í fína bankakortið mitt...eyði þá bara engum dýrmætum evrum á meðan.
Verkefnavinna er í fullum gangi í dag. Er að hanna eyðublöð og setja saman skjölin sem við hópasystur höfum búið til.
Og um helgina er bara meiri verkefnavinna. Vonandi verður Hörður orðinn góður á morgun svo krakkarnir og Halli geti gert eitthvað skemmtilegt um helgina.
Gott í bili.

01 október 2008

Sól og blíða

Sólin kom aftur á mánudaginn.
Ég labbaði með Herði í skólann, tók regnhlífina með til vonar og vara. Var mætt eldsnemma í bankann til að stofna bankareikning. Halli var búinn að segja mér að ég yrði að tala við konu því strákurinn í bankanum kynni ekki ensku!. Ég beið og beið, konan var upptekin. Endaði á því að fara bara í röðina hjá stráknum og þegar kom að mér þá spurði ég hann hvort hann kynni ensku, hann neitaði því og kallaði á konuna. Hún kom. Þegar hún sá nafnið mitt og hvaðan ég væri þá spurði hún mig hvort ég væri nokkuð skyld herra Ingólfsson. Halli er greinilega svona eftirminnilegur:). Milli þess sem hún svarði í símann og hringdi nokkur símtöl afgreiddi hún beiðni mína um bankareikning. Þetta tók mig ekki nema 40 mínútur, að stofna reikning, leggja inn á hann og fá aðgang að einkabanka. Ég get reyndar ekki notað einkabankann fyrr en ég verð búin að afreka að fá mér spænskt gemsanúmer. Fæ nefnilega sendan staðfestingarkóda í síma og get ekki notað Halla síma. Hann á greinilega ekki að komast í þennan reikning, hahahaha!
Þegar þessu öllu var lokið rölti ég í vinnuna til Halla og þegar þangað kom fattaði ég að ég hafði gleymt regnhlífinni í bankanum, enda sól og blíða úti. Svo ég mátti fara aftur í bankann, bíða eftir að ná athygli einhvers til að benda á regnhlífina mína.
Svo var bara að fara heim, þrífa veröndina eftir alla rigninguna og þvo stórþvott þar sem þurrkurinn var kominn aftur.
Annars er ég bara að læra, á að skila þremur verkefnum á mánudag. Krakkarnir frekar fúlir yfir að komast ekki í tölvuna fyrir mér.
Hörður var heima í dag, kominn með hósta og var frekar druslulegur í morgun. En hann fer nú væntanlega í skólann á morgun samt. Enda þarf ég að fara í bankann og sækja nýja bankakortið mitt sem verður tilbúið á morgun ;).
Nýtt gæludýr birtist hér á mánudaginn, einhvers konar froskur með sogskál. Allavega sá ég hann hangandi á glerinu í stofuglugganum um hádegi. Hélt fyrst að þetta væri laufblað sem hefði fokið á glerið. En við nánari athugun þá kom í ljós að þetta "laufblað" var með augu og andaði. Svo bara hékk hann þarna og hreyfði sig ekki. Við kíktum á hann með reglulegu millibili, og ef maður horfði vel mátti sjá hann hreyfa aðeins munninn og anda af og til. Þegar kominn var háttatími og ég ætlaði að kíkja á hann var hann horfinn og ekkert hefur til hans spurst síðan.
Gott í bili, verið að vinna í myndasíðu á milli lærdómstarna.