Það er kominn sunnudagur. Ég sit hér og hlusta á rás2, skemmtileg tónlist. Maður missir alltaf af þessu á Íslandi þegar setið er yfir mislélegum bíómyndum í sjónvarpinu. Hér nennum við ekki mikið að horfa á sjónvarpið, allt er talsett á spænsku eða þýsku.
Halli fór út að borða með vinnunni sinni og ég var heima að gera verkefni og reyna að skemmta krökkunum á meðan. Það er gott að eiga góða frænku í ammeríkunni sem reddaði algerlega verkefninu mínu. Ég er ekki sú besta í að skrifa á ensku, en Vala er snillingur í því. Takk frænka fyrir hjálpina.
Krakkarnir fóru í sundlaugina með Halla í dag í smá stund. Svo tóku þau sig til óumbeðin og fóru að læra smá stærðfræði. Greinilega smitandi að læra hér í dag.
Ég skemmti mér konunglega með nýja tölvusímann minn...er alltaf að trufla einhverja með símtölum ;) (alltaf gott að finna sér eitthvað annað að gera en læra).
Á morgun (reyndar í dag) þá er meiri verkefnavinna og svo þarf ég að hlusta á fleiri fyrirlestra.
Annars var gaman í morgun að fylgjast með maurunum. Í gærkvöldi sá ég fiðrildi lognast útaf hérna á veröndinni. (ég eitra svo mikið fyrir skordýrunum:). Svo í morgun sá ég helminginn af fiðrildinu á fleygiferð yfir flísarnar í fylgd mauraskrúðgöngu. Aðeins lengra frá voru aðrir maurar með hinn helminginn fastann í skoru milli flísanna. Þeir voru nú snöggir að koma því upp úr skurðinum og þrömmuð í skrúðgöngu í humátt á eftir hinum. Ótrúlegt hvað þessum litlu pöddum tekst að fara hratt yfir með svona stóra byrgði.
Gott í bili
21 september 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
OJJJJ bara Jóhanna skordýr...maurar Have fun fegin er ég að hafa bara venjulegar flugur , köngulær og fiðrildi hahaha...
Hæ Jóhanna. Ég heyri á öllu að það er töluverður munur á veðurfarinu hjá okkur en námsefnahellingurinn er sá sami. Nóg að gera í skólanum, væri þó alveg til í að vera að læra úti í garði í 26 stiga hita í stað þess að sitja inni í rigningunni.
Hafðu það sem best og vonandi gengur vel að aðlaga sig að nýjum heimkynnum.
kveðja
Dagný
Skrifa ummæli