02 september 2008

Á Spáni

Jæja, þá erum við komin á leiðarenda öll fjölskyldan. Ég, Hörður og Sólrún mættum á svæðið á fimmtudaginn. Halli kom og sótti okkur á flugvöllinn í Malaga og keyrði okkur í okkar nýja heimili. Okkur finnst heitt, erum búin að læra að ganga hægt og rólega. Hörður er meira að segja orðinn eins og ekta spánverji, vill frekar vera skuggamegin á götunni.
Við erum búin að fara í bæinn, fara á ströndina og prófa sundlaugina í garðinum nokkru sinnum.
Og í morgun skrifuðum við undir leigusamning, fáum glæsilegt 3 svefnherbergja og 3 baðherbergja raðhús með heitum potti og sundlaug í garðinum. Gætum flutt þangað núna EN við erum svo háð internetinu að við verðum eiginlega að bíða eftir að búið sé að tengja það. Spánverjar eru ekkert að flýta sér þannig að það getur tekið fimm daga að tengja netið ;(
Gott í bili, hér má sjá íbúðina http://www.banusas.com/pb/wp_5d2889fd/wp_5d2889fd.html

1 ummæli:

Unknown sagði...

Til hamingju með bloggið :o) vonandi verður þú nú dugleg að blogga ég verð pottþétt dugleg að fylgjast með. Bestu kveðjur Áslaug