Eins og sést hér á síðunni þá er internetið komið, jibbý!!!. Ég missti nú reyndar af internet gæjanum, hann náttúrulega kom á meðan ég fór með Sólrúnu í skólann á mánudaginn. En sem betur fer ákvað hann að skilja ráterinn eftir í garðinum svo ég gat náð í hann þegar ég kom heim.
Þegar við Sólrún vorum búnar í skólanum þá sóttum við Hörð í vinnuna til Halla og til stóð að kaupa skóladót en ekkert varð úr því vegna þess að þau fengu engar upplýsingar um hvað þau ættu að vera með.
Svo við fórum heim og ég setti upp netið. Það tók nú smá tíma því leiðbeiningar voru að sjálfsögðu á spænsku eingöngu! En ég snillingurinn komst nú í gegnum þetta og við skemmtum okkur svo við að hlusta á útvarpið og skoða síður.
Á þriðjudaginn labbaði ég með Sólrúnu í skólann, hún mætir 8:15 en Hörður mætir 9:00 og röltir með Halla. Svo fór ég heim og komst að því að ég ætti sjö fyrirlestra til að hlusta á og eitt verkefni sem á að skila um helgina og annað hópverkefni sem á að skila eftir helgi. Þannig að það er nóg að gera þessa dagana.
Um 13:30 rölti ég svo af stað að ná í krakkana. Hörður er búin kl 14 en Sólrún 14:45, svo við þurfum að bíða aðeins eftir henni. Sólrún fékk engar bækur, bækurnar fyrir Hörð voru búnar og eiga að koma fleiri fyrir helgina, sjáum til hvernig það gengur.
Svo nú labbar maður eins og herforingi fram og til baka, það eru sirka tveir tímar á dag. Og ef við förum svo í búðina þá bætist við annar klukkutími í labb. Ég held ég hafi ekki gengið svona mikið síðan áður en ég fékk bílpróf!
Það er nú ekkert verið að dæla í fólk blöðum hér að óþörfu. Sólrún mátti skrifa upp sína stundaskrá, Hörður á að mæta með 500 blaða pakka af ljósritunarpappír í skólann.
Hörður er ánægður í sínum skóla, situr við hliðina á enskri stelpu sem sér um að túlka fyrir hann. Í Sólrúnar bekk var hins vegar enginn sem talaði ensku, ekki einu sinni kennarinn. Svo í dag var hún sett í annan bekk þar sem eru tvær stelpur frá Svíþjóð sem kunna líka ensku og eiga að hjálpa henni. Halli fór og ræddi við konuna á skrifstofunni í gær (sem við höldum reyndar að sé skólastjórinn) og henni fannst alveg tilvalið að gera þetta svona. Hún heldur greinilega að allir Norðurlandabúar tali sama mál, hihi. En það verður vonandi auðveldara fyrir hana að hafa svona aðstoðarmenn í skólanum. Við vorum í fleiri klukkutíma að þýða fyrsta skólaverkefnið hennar, sem var spurningalisti um hvernig maður lærir og svoleiðis. Annars eiga þau bæði að fá auka spænskukennslu þrisvar í viku, ekkert hefur enn borið á því hjá Herði en það er víst verið að vinna í að ráða kennara í Sólrúnar skóla.
Svo er bara áframhaldandi spenna um hvenær skólabækur fara að berast.
Gott í bili og það má kommenta á síðuna :)
18 september 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Þið hafið nú bara gott af þessu labbi! ;) Segi ég sem er nýkomin með bíl.
Ánægjulegt að heyra að skólarnir eru svona, hmm, góðir í samstarfi við ykkur. Svaka stuð að læra með engar bækur! :P
:o) Gasalega gaman að lesa fréttir af ykkar ævintýrum.
já íslenska og sænska humm jú jú það væri flóknara væru þær Finnskar hehehe.
Held áfram að fylgjast með Amma Sella búin að fá að vita að Sólrún eigi bókina kom henni skemmtilega á óvart. Bestu kveðjur frá okkur í rokinu.
Skrifa ummæli