Það rignir og rignir og rignir. Búið að vera þrumuveður og úrhellis rigning í tvo daga. Það á víst líka að rigna á morgun. EN það er rúmlega 20 stiga hiti samt.
Á föstudaginn fórum við Halli til Marbella að ræða við endurskoðanda. Hann fræddi okkur á því hvernig skattakerfið og fyrirtækjarekstur virkar á Spáni. Svo fórum við á fínu löggustöðina að ná í spænsku kennitölurnar okkar og sækja um kennitölur fyrir krakkana. Um daginn vantaði fæðingarvottorð fyrir þau. Við sýndum fólkinu pappírana þeirra og þá að sjálfsögðu réttu þau okkur fleiri eyðublöð til að fylla út. Það reyndist vera einhvers konar tilkynning um búsetu. Og Halli þurfti að fara aftur í bankann að borga smá fyrir það. Þeir taka ekki við peningum á þessum stað, allir verða að skutlast í bankann til að borga, og koma svo aftur og bíða í röðinni :).
Þegar Halli kom aftur þá var kominn annar starfsmaður við borðið. Hann var nú ekkert á því að taka við þessum pappírum. Við útskýrðum fyrir honum að svona hefði konan sem við gátum bent á vilja hafa þetta. Hann var nú frekar fúll, því við höfðum víst ekki sorterað rétt í bunka fyrir hann og hann tekur sko bara við pappír í réttum bunkum. Þetta hafðist nú allt á endanum og svo sagði hann okkur að bíða!! Við biðum þó nokkra stund án þess að hafa hugmynd um eftir hverju við værum að bíða.
Svo var ég kölluð upp og fékk þetta fína græna skírteini með nafninu mínu og nýju kennitölunni. Halli fékk líka svoleiðis en konan var að dunda sér við að búa til eins handa krökkunum. Á meðan skoðuðum við Halli okkar blöð. Hans var í lagi. Á mínu stóð að ég væri fædd í FRAKKLANDI (ISLANDIA), þ.e. kaupstaðnum Frakklandi sem er víst á Íslandi. Ég benti fúla afgreiðslumanninum á þetta og hann sagði að það skipti engu máli. Þá tókum við eftir því að foreldrar mínir hétu víst Hörður og Sarah og ég er víst fædd 4 nóvember 1959. Ég var ekki alveg sátt og benti á misræmið í vegabréfinu mínu og á þessu blaði. Konan tók þá eftir því að kennitalan mín væri gömul og sagði mér að ég hefði sótt um áður í Alicante. Ég kannaðist nú ekkert við það. Á endanum féllst hún á það að það hefði sennilega verið einhver önnur Jóhanna sem ætti þá kennitölu. Svo bara snaraði hún út úr tölvunni sinni nýju blaði handa mér, með réttum fæðingarstað, réttum aldri og réttum foreldrum :) Og nýrri kennitölu. Sem er afar merkilegt því það þarf nefnilega að bíða í hálfan mánuð eftir kennitölunni. Og við vorum að sækja um fyrir krakkana og fengum þeirra kennitölur strax....þurfum ekkert að fara aftur :).
Eftir þetta ævintýri fór ég heim og ætlaði að hlusta á fyrirlestrana á Bifröst. Það reyndar gekk ekki Herði til mikillar gleði og gat hann þá leikið sér í tölvunni.
Á laugardag skrapp ég í gönguferð á pósthúsið að sækja skólabækurnar mínar. Þetta er dágóður spölur að rölta. Ég fór í regnslánni hennar Sólrúnar, með nýju regnhlífina með mér því það rigndi heilmikið. Mér tókst nú að labba framhjá pósthúsinu, en fann það nú fyrir rest. Þetta endaði sem tæplega 5 km ganga.
Svo reyndi ég að hlusta á fyrirlestrana en gafst nú fljótlega upp á því vegna þess að suðið var að gera mig svolítið pirraða og svo heyrði ég ekki nógu vel til að halda þræði. Svo ég skipti bara í að lesa nýju skólabækurnar mínar.
Í morgun vöknuðum við í þrumuveðri og úrhellisrigningu. Halli og Sólrún fóru í bæinn að versla í matinn, Hörður fór að gera aðra tilraun til að heimsækja Sölva og miðað við hvað hann er búinn að vera lengi þá virðist hann nú ekki vera með svona slæmt kattarofnæmi eins og við héldum um daginn.
Hörður er kominn heim. Var með nefspreyið með sér og notaði það tvisvar, var nú aðeins með glansandi augu þegar hann kom heim. Þetta sem sagt slapp þokkalega til með ofnæmislyfjum.
Gott í bili.
28 september 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Aldeilis nóg um að vera en þetta hljómar nú hálf hrakfallalega í mín eyru ;o) sé eiginlega fyrir mér Klaufabárðana úr sjónvarpinu hehehe.... Svei mér þá ef maður verður ekki bara ánægður með þjónustuna hér eftir að hafa lesið þetta....Góða skemmtun áfram og heislur héðan.
Prufukomment til að komast að því hvort það er eitthvert vandamál að koma með alvörukomment ;-)
Kannski þetta virki betur svona, á íslensku og allt.
Merkja bara við Name/Url og setja nafnið sitt þar.
Vonandi gengur betur að kommenta núna.
Þetta gengur allt vel hja´ykkur sé ég, bara spennandi fyrir íslendinga að þurfa að bíða í biðröðum osfrv. það er eitthvað sem við sættum okkur ekki við hér heima viljum fá allt helst í gær ;) fylgist með þér Jóhanna mín knús og kossar frá Hörpu frænku :*
Haahahahha, og hvar ætli Frakkland á Íslandi sé? Ég sé að þú hefur verið að ljúga um aldur þinn, næstum 50! hehehe
Það virðist bara vera meiri rigning hjá ykkur en okkur. En aftur á móti er kaldara hér
Bíð enn eftir myndum eða myndasíðu
Er að vinna í myndasíðunni :) þetta kemur allt saman
Skrifa ummæli