Í byrjun þessarar viku vöknuðum við í svoleiðis úrhellis rigningu, þetta var bara eins og að standa í sturtunni. Sólrún og Halli fóru snemma af stað, Sólrún í regnslánni sem hún fékk á einhverju Símamótinu, Halli í jakka. Halli var rennandi blautur í gegn þegar hann kom í vinnuna, Sólrún var bara blaut í fæturna en taskan slapp ekki alveg. Stundaskráin hennar tapaði til dæmis föstudeginum.
Við Hörður vorum heppin, Silvía hringdi og bauðst til að sækja hann svo við þyrftum ekki að labba í þessu veðri. Þegar ég fór að sækja krakkana hafði nú stytt upp. En hér er greinilega ekki hægt að mæla rigningu í millimetrum eins og hún systir mín gerir, heldur er þetta mælt í metrum. Rosalegt, en skemmtilegt.
Hörður fékk bækurnar sínar loksins í gær. Við höfðum ekki tíma til að plasta þær allar eins og á að gera hér, þannig að hann fór með allra bækurnar í skólann í dag, þarf að koma með þær heim svo við getum plastað og fara svo með þær aftur á morgun. Bækurnar eru geymdar í skólanum. Taskan hans var sko vel þung í morgun. Eins gott að hún er á hjólum :). Það gengur erfiðlega að fá allt skóladótið sem þarf. Sólrúnar skóli er ekkert að láta nemendur fá innkaupalista. Sumir kennarar virðast segja nemendum á spænsku hvað þeir eiga að vera með. Hún skrifaði smá lista í skólanum eftir töflunni. Þegar Halli fór að kaupa eftir honum fóru konurnar í búðinni að benda honum á ýmislegt sem hún ætti að vera með. Halli tók nú ekki sénsinn á að vera að kaupa það allt saman, en sumt hefði verið góð hugmynd.
Ein bekkjarsystir Sólrúnar er dönsk en hefur búið hér svo til frá fæðingu. Hún var að segja Sólrúnu að hún væri með einkakennara í dönsku heima og Sólrúnu væri velkomið að vera með...fyndið, Íslendingar tala EKKI dönsku og ekkert endilega sænsku heldur. Við ákváðum nú að enska, spænska og franska væri nóg af tungumálum í bili!!
Ég dunda mér á daginn við að eitra fyrir maurum, spreyja á þá eitri og skemmti mér við að horfa á hvað gerist...kvikindishátturinn að drepa mann. Svo er náttúrulega nóg að gera við að læra. Vinnuhelgi framundan á Bifröst um helgina þannig að augljóst er hvað ég geri þá. Vonandi fer svo aðeins að róast í skólanum.
Við förum að spjalla við endurskoðanda á morgun, sem á að segja okkur hvað við þurfum að gera til að koma mínu Bowen fyrirtæki í gang. Alveg kominn tími til að fara að gera eitthvað skemmtilegt ;).
Gott í bili. Muna að kommenta, leiðbeiningar hér til hliðar.
25 september 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Þessir spánverjar eru nú alveg...! Búin að vera í skólanum í hva, 10 daga, og loksins komin með bækur. Sussubía.
Kannast við gleðina við að drepa maura. Man líka hvernig pabbi var óður með eitthvað hreinsiefni og skildi brúsann svo eftir á gólfinu, eins og viðvörun! Enda sáust fáir maurar hjá okkur eftir það.
Hvenær kemur myndasíða? ;)
Skrifa ummæli