16 september 2008

Langt, langt blogg. Lesist neðan frá og upp ;)

Sunnudagur 14. september

Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Hörður, hann er 9 ára í dag.
Við vorum snemma á fótum. Halli var búinn að fela pakkana og gera fjársjóðskort svo Hörður skemmti sér við að leita með aðstoð Sólrúnar. Sem betur fer fundust nú allir pakkarnir. :)
Svo fórum við í dýragarðinn í Fuengirola, sem er næstum klukkutíma ferð með strætó. Við vorum um miðjan dag þar og dýrunum var greinilega heitt eða það var síesta hjá þeim, því ljónin, blettatígrarnir og aparnir voru frekar þreyttir og hreyfðu sig ekki mikið. Á heimleiðinni komum við við í Burger King og fengum okkur kvöldmat.
Svo komu afmælisgestirnir Sölvi og Silvía í afmæliskökur og kaffi . Kakan heppnaðist nú bara ótrúlega vel miðað við hvernig hún var bökuð, bolli notaður til að mæla með í staðinn fyrir vigt. En það verður að segjast að hún var nú ekki eins og alvöru skúffukaka, alltof sæt. Sennilega er sykur í þessu kakói sem við keyptum (eftir mikla leit). En hún var vel æt og með nammi og kertum og það er það sem máli skiptir á svona dögum.
Á morgun er svo fyrsti skóladagurinn. Hörður á að mæta kl 9 og vera til 14. Sólrún mætir kl 13.30 og er til 15. Hörður fer með fínu Ferrari skólatöskuna sem hann fékk í afmælisgjöf. Halli fer með honum í skólann og ég með Sólrúnu. Ég þarf nefnilega að bíða eftir internet gæjanum sem kemur á morgunn :) ...ég hlakka ekkert smá til.

Laugardagur 13. september

Afmælisdagur á morgun. Sennilega skreppum við í dýragarðinn þegar búið verður að opna pakkana.
Í dag þarf að baka köku, búið að kaupa næstum allt í hana...keyptum óvart hrísmjöl í staðinn fyrir kartöflumjöl ;) þessir Spánverjar merkja nefnilega ekki á íslensku.
Eyddum deginum í að þrífa og blása í blöðrur. Og baka skúffuköku eftir minni og setja á hana krem.

Föstudagur 12. september

Til hamingju með daginn Berglind frænka. :)
Skruppum í skólana í dag. Ákváðum að fara og kaupa skólabækur fyrir krakkana. Röltum af stað í steikjandi hita (veit ekki hversu mikið, á engan hitamæli og ekkert internet enn). Fórum fyrst í Harðar skóla. Ritarinn þar sem er afar pirruð kona hafði ákveðið að breyta afgreiðslutímanum sínum og hafði lokað klukka 11. Hún lokaði kl 12 í síðast þegar við komum. Svo ég skrifaði upp bókalistann sem hangir uppi á töflu (hér er greinilega verið að spara pappír, fáum ekki afhentan bókalistann). Við fórum í bókabúðina sem er rétt hjá og ætluðum að kaupa bækur. Þar fengum við að vita að við ættum að fá ávísun hjá skólanum til að borga fyrir bækurnar. Ég sagði konunni í búðinni að skrifstofan væri lokuð en hún sagði að hún ætti að vera opin til tvö. Og við fórum aftur í skólann. Þar fengum við að vita að skrifstofan væri lokuð og myndi opna aftur á mánudag og þá gætum við fengið þessa ávísun. Þannig að Hörður mætir bókalaus í skólann á mánudag. Halli fer með honum og ég fer með Sólrúnu í hennar skóla. Hún á ekki að mæta fyrr en eftir hádegi og fær sínar bækur í skólanum.
OG á mánudagsmorgun á internet kallinn loksins að koma. Mikið rosalega hlakka ég til :). Ég ætla rétt að vona að hann verði kominn áður en við Sólrún förum í skólann.
Hörður Tryggvi fékk leyfi til að gista hjá Sölva og við notuðum tækifærið og fórum í búðina að kaupa afmælisgjafir. Þegar við vorum þar hringdi Silvía mamma Sölva og sagði að Hörður væri greinilega með ofnæmi því hann væri orðinn vel rauðeygður og klæjaði í nefið og augun. Svo hún skutlaði honum til baka þegar við komum heim. Hann fékk ofnæmistöflu og lagaðist við það. Svo sofnuðu þeir saman í Harðar rúmi vinirnir, dauðþreyttir eftir langan dag. Erfiðlega gekk að koma Sölva á fætur og út í bíl...ótrúlegt hvað maður getur verið þreyttur.

Fimmtudagur 11. september

Í dag hringdi ritarinn og sagðist hafa fengið númer fyrir okkur og við gætum farið á löggustöðina en nú væri búið að breyta þannig að við þyrftum fyrst að fara og borga skráningargjaldið í banka og koma með kvittun fyrir því. Það er greinilega alltaf verið að breyta þessu því hún sagði að þetta hefði ekki verið svona í síðustu viku. :) Svo aftur fórum við með taxa niður í Marbella, náðum í númerin og fórum á staðinn. Þar var biðröð og við máttum bíða til kl 13:30 eða svo eftir að röðin kæmi að okkur. Hörður notaði tækifærið og fór í svona myndabás og tók af sér myndir til að láta skólann hafa. En svo bara héngum við og biðum.
Það var reyndar spennandi að sjá þegar gömul kona í hjólastól kom. Það er lyfta fyrir hjólastóla við stigann, svo græja sem hjólastóllinn fer upp á og rennur svo eftir sleða á veggnum upp. Þau dunduðu sér sennilega í hálftíma að reyna að láta þetta virka, enginn virtist kunna á þetta svo ekkert gekk. Það endaði með því að starfsmaður kom út og tók fingraför konunnar á stéttinni fyrir utan. :)
Þegar röðin var loksins komin að okkur kom í ljós að við þyrftum að hafa fæðingarvottorð fyrir krakkana, sem við vorum ekki með. Svo við gátum sótt um kennitölu fyrir mig og Halla en ekki fyrir krakkana. Við fengum nú sem betur fer stimpil á eitthvað blað þannig að við getum farið með þetta án þess að þurfa að bíða aftur í röðinni. Hagstofan sendir okkur svo fæðingarvottorðin í tölvupósti og venjulegum pósti svo vonandi verður hægt að klára þetta af sem fyrst.
Við vorum reyndar búin að fá skrítin fæðingarvottorð frá FSA. Þar stóð að ég og Halli hefðum fætt krakkana og mín kennitala notuð bæði fyrir mig og hann. Og til viðbótar er Hörður víst jafngamall Sólrúnu, fæddur 1996. Starfsmaðurinn sem gerði þetta var greinilega ekki alveg vaknaður. Samt hafði viðkomandi vandað sig við að hafa þetta bæði á ensku og íslensku.
Við dunduðum okkur svo við að læra spænsku eftir að við komum heim.
Hörður Tryggi prófaði nefspreyið hennar Tinnu sem hún gleymdi hér. Hann er greinilega komin með ofnæmi fyrir einhverju. Ég held það séu blómin, því þegar við förum framhjá stöðum með miklum blómailm þá hnerrar hann eins og honum sé borgað fyrir það. Það vill til að við eigum fullt af ofnæmislyfjum svo þetta ætti að bjargast hjá okkur.

Miðvikudagur 10. september

Fórum snemma af stað með leigubíl til að sækja númerin okkar sem ritarinn á lögfræðiskrifstofunni ætlaði að sækja fyrir okkur. Þegar þangað kom þá kom í ljós að hún fékk ekki númer. Það var svo löng röð á undan henni. Það þýðir að á morgun prófar hún aftur og hringir í okkur nógu snemma til að við séu ekki að fara alla leið til Marbella fyrir ekki neitt.
Svo við breyttum þessu í verslunarferð. Fórum í apótek og keyptum fyrir og eftir moskítókrem og einhvern vökva sem maður setur í samband við innstungu sem á að fæla moskító í burtu.
Svo fundum við matarbúð (svona Bónus verslun) og fylltum kerruna mína fínu af mat og drykk. Náðum okkur svo í leigubíl til að komast heim. Sölvi kom svo í pössun og var það sem eftir var dags.
Hér eru rimlahurðir fyrir öllum gluggum. Í dag komu málarar til að mála þá og útihurðina. Við létum þá hafa lykla að húsinu svo þeir gætu málað á meðan við værum að heiman. Lögfræðingurinn í næsta húsi sagðist hafa gert það þegar þeir máluðu hjá henni og að það væri allt í lagi.
María (lögfræðingurinn) sá um að túlka fyrir okkur samskiptin við málarana og svo erum við náttúrulega með snilldar túlk 8 ára gamlan í pössun. :) Annars er ég góð með orðabókina. Skrifa bara miða til þeirra.

Þriðjudagur 9. september

Vorum snemma á fótum og röltum í vinnuna til Halla. Þaðan fórum við fyrst að skrá Sólrúnu í sinn skóla og svo Hörð í sinn. Engin smá eyðublaðahrúga sem þetta fólk vill fá. Skipulagið er samt ekki komið meira á hreint en það að ekki var hægt að fá uppgefið hvenær þau ættu að mæta. Það kemur í ljós í lok þessarar viku og skólinn byrjar á mánudag.
Við röltum heim í svaka hita um hádegi og Sölvi var með í för. Sölvi er sonur Silvíu sem vinnur með Halla og er ári yngri en Hörður Tryggvi. Hann verður í pössun hjá okkur þangað til skólinn byrjar. Þeir skemmtu sér svo konunglega strákarnir við að leika í dag. Urðu svolítið blautir á því að fylla vatnsblöðrur. En það er nú ekkert mál í þessum hita. Og á morgun er það biðröðin langa. Þurfum að fara á löggustöðina niðri í Marbella til að fá spænska kennitölu. Þetta er biðraðaferli. Fyrst fer ritari lögfræðingsins snemma í fyrramálið í biðröð til að fá númer fyrir okkur. Svo sækjum við númerið til hennar og förum í biðröð að bíða eftir að okkar númer verði kallað upp. Þetta getur tekið upp í fjórar klst í bið.

Mánudagur 8. september

Vorum bara heima...þvo allan sandinn frá því í gær. Svo var veröndin líka þrifin.

Sunnudagur 7. september

Fórum á ströndina, gekk bara vel að rata. Fengum okkur Burger King á leiðinni heim. Allt í sandi, krakkarnir grófu hvort annað og reyndar Halla líka á kaf í sand.
Laugardagur 6. september
Við ákváðum að klára af gömlu íbúðina í dag og nota tækifærið að fara á netið þar. Röltum af stað með tvær tölvur og sundföt fyrir krakkana svo þau gætu farið í sundlaugina hjá blokkinni, sem er bæði með grunnum og djúpum enda. Þetta er tæplega hálftíma rölt, meðal annars framhjá kúrekanum sem fylgist með nautahjörðinni sinni hér beint utan við húsið okkar , á stóru grænu svæði. Við erum sem sagt í stórborg með sveitina við hliðina á okkur.
Þegar við komum í íbúðina kom í ljós að búið var að loka fyrir netið :). Við (aðallega Halli samt) þrifum íbúðina og krakkarnir fóru smá stund í sund. Laugin er frekar köld og það var svolítill vindur (heitur reyndar) en samt var þeim kalt svo þau voru nú ekki lengi í sundinu. Ég fór með þeim því þau mega helst ekki vera ein.
Þegar íbúðin var til, röltum við í Halla vinnu til að fara smá á netið og löbbuðum svo heim.
Hörður og Halli ákváðu að prófa sundlaugina hér, en það var orðið skýjað og frekar kalt, þannig að það var líka stutt sundferð.
Svo var kominn tími til að fara í búðina. Eftir nokkra umræðu var ákveðið að fara niður í Puerto Banus í búð. Við röltum af stað, fórum yfir hraðbrautina á göngubrú. Þegar þangað kom ákvað Halli að það væri styttra að fara í aðra búð, svo við fórum í undirgöng undir hraðbrautina. Eftir smá rölt komumst við að því að Halli var ekkert of viss um hvert hann var að fara...svo við röltum til baka og fórum mína leið (ég er nefnilega svo sniðug að lesa á skilti :). Á endanum komumst við í búðina og versluðum í matinn. Gott var að hafa kerruna mína fínu með til að hlaða pokunum á, ekkert sérlega spennandi að halda á 5 lítra vatnsbrúsa og gosi langar leiðir.
Sennilega höfum við verið á röltinu í samtals 2,5 klst.í dag. Þannig að það er ekki hægt að segja annað en maður sé farin að stunda líkamsrækt á fullu. :)
Og á morgun er ætlunin að labba aðeins meira...fara á ströndina og leggjast í sólbað. Maður verður nú að worka tanið, gengur ekki að vera skjannahvítur þegar maður býr á Costa Del Sol.

Föstudagur 5. september

Byrjuðum daginn á að hitta lögfræðinginn okkar,hana Maríu. Hún er að sjá um allar skráningar fyrir okkur, skráningu á aðsetri, sækja um spænska kennitölu og fleira. Hún er meira svona ráðgjafi og reddari. Yndisleg spænsk kona sem á heima hér í næsta húsi. Gott að hafa svona nágranna. Krökkunum fannst nú svolítið skrítið að þurfa sjálf að skrifa undir eitthvað svona blað en þau þurftu að undirrita flutninginn til Spánar.
Við eyddum svo deginum í að þvo meira og ganga frá dótinu úr pökkunum okkar sem við fengum frá Íslandi í dag. Svo fengum við símamanninn í heimsókn til að tengja heimasímann okkar. Sem þýðir að nú geta allir hringt í okkur heima....við bíðum spennt eftir fyrsta símtalinu. Númerið er 952-819-321 með 0034 á undan.
Um helgina er svo planið að klára að ganga frá gömlu íbúðinni og skreppa jafnvel á ströndina aftur.

Fimmtudagur 4. september

Þvoðum stórþvott í dag...nóg af þvotti alltaf. En hér er gaman að þvo. Maður hengir út og áður en næsta vél er búin er búið að taka inn, brjóta saman og setja inn í skáp.
Það er víst dónaskapur að biðja Spánverja að fara úr skónum. Hér ganga allir um á útiskónum svo gólfin voru aðeins of skítug fyrir Sólrúnar smekk. Hún er greinilega ekki vön að vera svona skítug á tánum. Svo við skúruðum allt húsið og þurrkuðum af. Svaka fínt hjá okkur.
Svo prófuðu krakkarnir nýju sundlaugina...hún vakti ekkert sérstaka lukku því hún er bara djúp, og vel djúp eftir því sem Sólrún segir. Henni fannst hún lengi á leiðinni upp eftir að hafa stokkið út í.
Um kvöldið var ákveðið að fara í La Canada sem er stór verslunarmiðstöð hér og redda mat í ísskápinn og lökum og handklæðum sem vantaði. Halli fékk lánaðan bíl með GSP tæki. Þrátt fyrir það þá tókst okkur að villast aðeins svo ferðalagið varð frekar langt, en við komumst á leiðarenda klukkutíma áður en átti að loka. Keyptum fullt í matinn og stórundarleg lök...til að troða allri dýnunni í og renna fyrir ;) skil ekki alveg tilganginn.

Miðvikudagur 3. september

Fluttum í nýja húsið og ég og krakkarnir tókum upp úr töskum og gengum frá. Fengum gesti fyrsta daginn þegar Silvía og Sölvi komu með pabba hennar Silvíu með sér. Sáum strax köttinn sem vill endilega halda áfram að vera í fæði hér í þessu húsi þó hann eigi heima annarsstaðar. Fyrri eigendur gáfu honum að borða hér líka svo hann lætur sér ekki segjast þó við reynum allt til að hræða hann í burtu.

2 ummæli:

Unknown sagði...

Óboj óboj held ég hafi bara aldrei lesið svona langt blogg áður :o) EN snilld samt sem áður og engu að síður að halda svona dagbók svo gaman að rifja upp síðar hlæja og finnast furðulegustu hlutir enn skemmtilegri en þeir voru ( þó þeir hafi verið hundleiðinlegir á sínum tíma) THí thí Bíð spennt eftir framhaldinu...

Tinna sagði...

Jahá! Það er ekkert smá blogg. Rosalega gaman að lesa þetta, sérstaklega þegar maður veit hvað þið eruð að tala um (sveitin og smalinn og það)
Hlakka til að koma í heimsókn og prófa þessa sundlaug.

Vertu svo dugleg að blogga!