28 september 2008

The Rain in Spain falls.......and falls and falls

Það rignir og rignir og rignir. Búið að vera þrumuveður og úrhellis rigning í tvo daga. Það á víst líka að rigna á morgun. EN það er rúmlega 20 stiga hiti samt.

Á föstudaginn fórum við Halli til Marbella að ræða við endurskoðanda. Hann fræddi okkur á því hvernig skattakerfið og fyrirtækjarekstur virkar á Spáni. Svo fórum við á fínu löggustöðina að ná í spænsku kennitölurnar okkar og sækja um kennitölur fyrir krakkana. Um daginn vantaði fæðingarvottorð fyrir þau. Við sýndum fólkinu pappírana þeirra og þá að sjálfsögðu réttu þau okkur fleiri eyðublöð til að fylla út. Það reyndist vera einhvers konar tilkynning um búsetu. Og Halli þurfti að fara aftur í bankann að borga smá fyrir það. Þeir taka ekki við peningum á þessum stað, allir verða að skutlast í bankann til að borga, og koma svo aftur og bíða í röðinni :).

Þegar Halli kom aftur þá var kominn annar starfsmaður við borðið. Hann var nú ekkert á því að taka við þessum pappírum. Við útskýrðum fyrir honum að svona hefði konan sem við gátum bent á vilja hafa þetta. Hann var nú frekar fúll, því við höfðum víst ekki sorterað rétt í bunka fyrir hann og hann tekur sko bara við pappír í réttum bunkum. Þetta hafðist nú allt á endanum og svo sagði hann okkur að bíða!! Við biðum þó nokkra stund án þess að hafa hugmynd um eftir hverju við værum að bíða.

Svo var ég kölluð upp og fékk þetta fína græna skírteini með nafninu mínu og nýju kennitölunni. Halli fékk líka svoleiðis en konan var að dunda sér við að búa til eins handa krökkunum. Á meðan skoðuðum við Halli okkar blöð. Hans var í lagi. Á mínu stóð að ég væri fædd í FRAKKLANDI (ISLANDIA), þ.e. kaupstaðnum Frakklandi sem er víst á Íslandi. Ég benti fúla afgreiðslumanninum á þetta og hann sagði að það skipti engu máli. Þá tókum við eftir því að foreldrar mínir hétu víst Hörður og Sarah og ég er víst fædd 4 nóvember 1959. Ég var ekki alveg sátt og benti á misræmið í vegabréfinu mínu og á þessu blaði. Konan tók þá eftir því að kennitalan mín væri gömul og sagði mér að ég hefði sótt um áður í Alicante. Ég kannaðist nú ekkert við það. Á endanum féllst hún á það að það hefði sennilega verið einhver önnur Jóhanna sem ætti þá kennitölu. Svo bara snaraði hún út úr tölvunni sinni nýju blaði handa mér, með réttum fæðingarstað, réttum aldri og réttum foreldrum :) Og nýrri kennitölu. Sem er afar merkilegt því það þarf nefnilega að bíða í hálfan mánuð eftir kennitölunni. Og við vorum að sækja um fyrir krakkana og fengum þeirra kennitölur strax....þurfum ekkert að fara aftur :).

Eftir þetta ævintýri fór ég heim og ætlaði að hlusta á fyrirlestrana á Bifröst. Það reyndar gekk ekki Herði til mikillar gleði og gat hann þá leikið sér í tölvunni.

Á laugardag skrapp ég í gönguferð á pósthúsið að sækja skólabækurnar mínar. Þetta er dágóður spölur að rölta. Ég fór í regnslánni hennar Sólrúnar, með nýju regnhlífina með mér því það rigndi heilmikið. Mér tókst nú að labba framhjá pósthúsinu, en fann það nú fyrir rest. Þetta endaði sem tæplega 5 km ganga.

Svo reyndi ég að hlusta á fyrirlestrana en gafst nú fljótlega upp á því vegna þess að suðið var að gera mig svolítið pirraða og svo heyrði ég ekki nógu vel til að halda þræði. Svo ég skipti bara í að lesa nýju skólabækurnar mínar.

Í morgun vöknuðum við í þrumuveðri og úrhellisrigningu. Halli og Sólrún fóru í bæinn að versla í matinn, Hörður fór að gera aðra tilraun til að heimsækja Sölva og miðað við hvað hann er búinn að vera lengi þá virðist hann nú ekki vera með svona slæmt kattarofnæmi eins og við héldum um daginn.
Hörður er kominn heim. Var með nefspreyið með sér og notaði það tvisvar, var nú aðeins með glansandi augu þegar hann kom heim. Þetta sem sagt slapp þokkalega til með ofnæmislyfjum.
Gott í bili.

25 september 2008

Margt að gera

Í byrjun þessarar viku vöknuðum við í svoleiðis úrhellis rigningu, þetta var bara eins og að standa í sturtunni. Sólrún og Halli fóru snemma af stað, Sólrún í regnslánni sem hún fékk á einhverju Símamótinu, Halli í jakka. Halli var rennandi blautur í gegn þegar hann kom í vinnuna, Sólrún var bara blaut í fæturna en taskan slapp ekki alveg. Stundaskráin hennar tapaði til dæmis föstudeginum.
Við Hörður vorum heppin, Silvía hringdi og bauðst til að sækja hann svo við þyrftum ekki að labba í þessu veðri. Þegar ég fór að sækja krakkana hafði nú stytt upp. En hér er greinilega ekki hægt að mæla rigningu í millimetrum eins og hún systir mín gerir, heldur er þetta mælt í metrum. Rosalegt, en skemmtilegt.
Hörður fékk bækurnar sínar loksins í gær. Við höfðum ekki tíma til að plasta þær allar eins og á að gera hér, þannig að hann fór með allra bækurnar í skólann í dag, þarf að koma með þær heim svo við getum plastað og fara svo með þær aftur á morgun. Bækurnar eru geymdar í skólanum. Taskan hans var sko vel þung í morgun. Eins gott að hún er á hjólum :). Það gengur erfiðlega að fá allt skóladótið sem þarf. Sólrúnar skóli er ekkert að láta nemendur fá innkaupalista. Sumir kennarar virðast segja nemendum á spænsku hvað þeir eiga að vera með. Hún skrifaði smá lista í skólanum eftir töflunni. Þegar Halli fór að kaupa eftir honum fóru konurnar í búðinni að benda honum á ýmislegt sem hún ætti að vera með. Halli tók nú ekki sénsinn á að vera að kaupa það allt saman, en sumt hefði verið góð hugmynd.
Ein bekkjarsystir Sólrúnar er dönsk en hefur búið hér svo til frá fæðingu. Hún var að segja Sólrúnu að hún væri með einkakennara í dönsku heima og Sólrúnu væri velkomið að vera með...fyndið, Íslendingar tala EKKI dönsku og ekkert endilega sænsku heldur. Við ákváðum nú að enska, spænska og franska væri nóg af tungumálum í bili!!
Ég dunda mér á daginn við að eitra fyrir maurum, spreyja á þá eitri og skemmti mér við að horfa á hvað gerist...kvikindishátturinn að drepa mann. Svo er náttúrulega nóg að gera við að læra. Vinnuhelgi framundan á Bifröst um helgina þannig að augljóst er hvað ég geri þá. Vonandi fer svo aðeins að róast í skólanum.
Við förum að spjalla við endurskoðanda á morgun, sem á að segja okkur hvað við þurfum að gera til að koma mínu Bowen fyrirtæki í gang. Alveg kominn tími til að fara að gera eitthvað skemmtilegt ;).
Gott í bili. Muna að kommenta, leiðbeiningar hér til hliðar.

22 september 2008

Skiladagur verkefnis tvö á þessari önn :)

Jæja, þetta gengur svona líka glæsilega. Hópverkefnið sem átti að skila í kvöld, komið ;). Undirbúningur fyrir næstu tvö verkefni hafinn, enda veitir ekki af, næsta á miðvikudag.
Það er vinnuhelgi á Bifröst um næstu helgi og ég verð bara heima með tölvuna í fanginu og reyni að fylgjast með. Skype-ið, tölvusíminn, msn-ið og námskjárinn ættu að duga.
Halli fór með krakkana í risa-sandkassa (ströndina) eins og Hörður kallar það í gær á meðan ég var heima að læra.
OG ekki nóg með að maður skemmti sér við að horfa á maura hér á veröndinni. Þegar ég kíkti út um miðjan dag í gær sá ég SLÖNGU á hraðferð meðfram húsinu!! Hún flýtti sér reyndar svo mikið að ég náði nú ekki að skoða hana almennilega. Hún var nú ekkert stór, kannski 30 cm eða svo. Ég náttúrulega gúglaði um leið og ég kom inn og er ekki frá því að þetta fyrirbæri kallist Horseshoe Wipe Snake. Það var allavega ekki ólíkt þessari mynd.

Það verður spennandi að sjá hvaða dýr kemur næst!!
Annars er margt að sjá hérna fyrir utan. Í gær missti ég af því að sjá tvo menn í fallhlífum lenda hérna á opna svæðinu við húsið. Sá bara þegar þeir voru að taka saman dótið sitt.

Krakkarnir fengu far í skólann í morgun því Halli var með bíl í láni. Herði fannst það nú óþarfi, finnst betra að labba í hálftíma en að rúnta kringum skólann í leit að bílastæði. Hann þuldi upp fyrir mig sex sinnum töfluna á þremur tungumálum á leiðinni heim. Hann er byrjaður í aukatímum í spænsku í skólanum. Sólrún fékk líka spænskubók fyrir byrjendur í dag og bekkjarsystur sem talar ensku til að hjálpa sér með hana.

En í fyrramálið þá verður enn og aftur rölt af stað í skólann. Einhvers staðar las ég að það taki mann þrjár vikur að verða háður einhverju. Nú erum við búin að vera hér í rúmar þrjár vikur, röltum allt sem við þurfum að fara (svotil) og ég er ekki frá því að ég sé að verða háð gönguferðum. Enda kannski ekkert skrítið þegar ég sé aukakílóin hverfa eitt af öðru :) og finn breytingu á úthaldinu ;)
Gott í bili

21 september 2008

Vinnuhelgi

Það er kominn sunnudagur. Ég sit hér og hlusta á rás2, skemmtileg tónlist. Maður missir alltaf af þessu á Íslandi þegar setið er yfir mislélegum bíómyndum í sjónvarpinu. Hér nennum við ekki mikið að horfa á sjónvarpið, allt er talsett á spænsku eða þýsku.
Halli fór út að borða með vinnunni sinni og ég var heima að gera verkefni og reyna að skemmta krökkunum á meðan. Það er gott að eiga góða frænku í ammeríkunni sem reddaði algerlega verkefninu mínu. Ég er ekki sú besta í að skrifa á ensku, en Vala er snillingur í því. Takk frænka fyrir hjálpina.
Krakkarnir fóru í sundlaugina með Halla í dag í smá stund. Svo tóku þau sig til óumbeðin og fóru að læra smá stærðfræði. Greinilega smitandi að læra hér í dag.
Ég skemmti mér konunglega með nýja tölvusímann minn...er alltaf að trufla einhverja með símtölum ;) (alltaf gott að finna sér eitthvað annað að gera en læra).
Á morgun (reyndar í dag) þá er meiri verkefnavinna og svo þarf ég að hlusta á fleiri fyrirlestra.
Annars var gaman í morgun að fylgjast með maurunum. Í gærkvöldi sá ég fiðrildi lognast útaf hérna á veröndinni. (ég eitra svo mikið fyrir skordýrunum:). Svo í morgun sá ég helminginn af fiðrildinu á fleygiferð yfir flísarnar í fylgd mauraskrúðgöngu. Aðeins lengra frá voru aðrir maurar með hinn helminginn fastann í skoru milli flísanna. Þeir voru nú snöggir að koma því upp úr skurðinum og þrömmuð í skrúðgöngu í humátt á eftir hinum. Ótrúlegt hvað þessum litlu pöddum tekst að fara hratt yfir með svona stóra byrgði.
Gott í bili

19 september 2008

Tölvusíminn og verkefnavinna

Ég fékk mér enn einn símann í gær, Tölvusíma hjá símanum. Nú get ég hringt ókeypis í alla heimasíma (og auðvita fyrirtæki) á Íslandi og þið getið hringt í mig eins og um innanlandssímtal væri að ræða. Númerið er 499-0421. Þetta er bara snilld :). Sérstaklega þessa dagana þegar ég er á kafi í verkefnavinnu.
Það er nóg að gera í skólanum, á að skila einu verkefni á morgun, laugardag, öðru á mánudag, þriðja á miðvikudag og fæ svo nokkra daga í viðbót fyrir það fjórða. Þannig að mér þarf ekki að leiðast (þó mér leiðist nú stundum að gera þessi verkefni ;) ).
Munið að kommenta, það þarf að fara aðeins neðar á kommentsíðuna og velja þar OpenID til að fá glugga til að setja nafnið sitt.
Nóg í bili.

18 september 2008

Skólastúss

Eins og sést hér á síðunni þá er internetið komið, jibbý!!!. Ég missti nú reyndar af internet gæjanum, hann náttúrulega kom á meðan ég fór með Sólrúnu í skólann á mánudaginn. En sem betur fer ákvað hann að skilja ráterinn eftir í garðinum svo ég gat náð í hann þegar ég kom heim.
Þegar við Sólrún vorum búnar í skólanum þá sóttum við Hörð í vinnuna til Halla og til stóð að kaupa skóladót en ekkert varð úr því vegna þess að þau fengu engar upplýsingar um hvað þau ættu að vera með.
Svo við fórum heim og ég setti upp netið. Það tók nú smá tíma því leiðbeiningar voru að sjálfsögðu á spænsku eingöngu! En ég snillingurinn komst nú í gegnum þetta og við skemmtum okkur svo við að hlusta á útvarpið og skoða síður.
Á þriðjudaginn labbaði ég með Sólrúnu í skólann, hún mætir 8:15 en Hörður mætir 9:00 og röltir með Halla. Svo fór ég heim og komst að því að ég ætti sjö fyrirlestra til að hlusta á og eitt verkefni sem á að skila um helgina og annað hópverkefni sem á að skila eftir helgi. Þannig að það er nóg að gera þessa dagana.
Um 13:30 rölti ég svo af stað að ná í krakkana. Hörður er búin kl 14 en Sólrún 14:45, svo við þurfum að bíða aðeins eftir henni. Sólrún fékk engar bækur, bækurnar fyrir Hörð voru búnar og eiga að koma fleiri fyrir helgina, sjáum til hvernig það gengur.
Svo nú labbar maður eins og herforingi fram og til baka, það eru sirka tveir tímar á dag. Og ef við förum svo í búðina þá bætist við annar klukkutími í labb. Ég held ég hafi ekki gengið svona mikið síðan áður en ég fékk bílpróf!
Það er nú ekkert verið að dæla í fólk blöðum hér að óþörfu. Sólrún mátti skrifa upp sína stundaskrá, Hörður á að mæta með 500 blaða pakka af ljósritunarpappír í skólann.
Hörður er ánægður í sínum skóla, situr við hliðina á enskri stelpu sem sér um að túlka fyrir hann. Í Sólrúnar bekk var hins vegar enginn sem talaði ensku, ekki einu sinni kennarinn. Svo í dag var hún sett í annan bekk þar sem eru tvær stelpur frá Svíþjóð sem kunna líka ensku og eiga að hjálpa henni. Halli fór og ræddi við konuna á skrifstofunni í gær (sem við höldum reyndar að sé skólastjórinn) og henni fannst alveg tilvalið að gera þetta svona. Hún heldur greinilega að allir Norðurlandabúar tali sama mál, hihi. En það verður vonandi auðveldara fyrir hana að hafa svona aðstoðarmenn í skólanum. Við vorum í fleiri klukkutíma að þýða fyrsta skólaverkefnið hennar, sem var spurningalisti um hvernig maður lærir og svoleiðis. Annars eiga þau bæði að fá auka spænskukennslu þrisvar í viku, ekkert hefur enn borið á því hjá Herði en það er víst verið að vinna í að ráða kennara í Sólrúnar skóla.
Svo er bara áframhaldandi spenna um hvenær skólabækur fara að berast.
Gott í bili og það má kommenta á síðuna :)

16 september 2008

Langt, langt blogg. Lesist neðan frá og upp ;)

Sunnudagur 14. september

Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Hörður, hann er 9 ára í dag.
Við vorum snemma á fótum. Halli var búinn að fela pakkana og gera fjársjóðskort svo Hörður skemmti sér við að leita með aðstoð Sólrúnar. Sem betur fer fundust nú allir pakkarnir. :)
Svo fórum við í dýragarðinn í Fuengirola, sem er næstum klukkutíma ferð með strætó. Við vorum um miðjan dag þar og dýrunum var greinilega heitt eða það var síesta hjá þeim, því ljónin, blettatígrarnir og aparnir voru frekar þreyttir og hreyfðu sig ekki mikið. Á heimleiðinni komum við við í Burger King og fengum okkur kvöldmat.
Svo komu afmælisgestirnir Sölvi og Silvía í afmæliskökur og kaffi . Kakan heppnaðist nú bara ótrúlega vel miðað við hvernig hún var bökuð, bolli notaður til að mæla með í staðinn fyrir vigt. En það verður að segjast að hún var nú ekki eins og alvöru skúffukaka, alltof sæt. Sennilega er sykur í þessu kakói sem við keyptum (eftir mikla leit). En hún var vel æt og með nammi og kertum og það er það sem máli skiptir á svona dögum.
Á morgun er svo fyrsti skóladagurinn. Hörður á að mæta kl 9 og vera til 14. Sólrún mætir kl 13.30 og er til 15. Hörður fer með fínu Ferrari skólatöskuna sem hann fékk í afmælisgjöf. Halli fer með honum í skólann og ég með Sólrúnu. Ég þarf nefnilega að bíða eftir internet gæjanum sem kemur á morgunn :) ...ég hlakka ekkert smá til.

Laugardagur 13. september

Afmælisdagur á morgun. Sennilega skreppum við í dýragarðinn þegar búið verður að opna pakkana.
Í dag þarf að baka köku, búið að kaupa næstum allt í hana...keyptum óvart hrísmjöl í staðinn fyrir kartöflumjöl ;) þessir Spánverjar merkja nefnilega ekki á íslensku.
Eyddum deginum í að þrífa og blása í blöðrur. Og baka skúffuköku eftir minni og setja á hana krem.

Föstudagur 12. september

Til hamingju með daginn Berglind frænka. :)
Skruppum í skólana í dag. Ákváðum að fara og kaupa skólabækur fyrir krakkana. Röltum af stað í steikjandi hita (veit ekki hversu mikið, á engan hitamæli og ekkert internet enn). Fórum fyrst í Harðar skóla. Ritarinn þar sem er afar pirruð kona hafði ákveðið að breyta afgreiðslutímanum sínum og hafði lokað klukka 11. Hún lokaði kl 12 í síðast þegar við komum. Svo ég skrifaði upp bókalistann sem hangir uppi á töflu (hér er greinilega verið að spara pappír, fáum ekki afhentan bókalistann). Við fórum í bókabúðina sem er rétt hjá og ætluðum að kaupa bækur. Þar fengum við að vita að við ættum að fá ávísun hjá skólanum til að borga fyrir bækurnar. Ég sagði konunni í búðinni að skrifstofan væri lokuð en hún sagði að hún ætti að vera opin til tvö. Og við fórum aftur í skólann. Þar fengum við að vita að skrifstofan væri lokuð og myndi opna aftur á mánudag og þá gætum við fengið þessa ávísun. Þannig að Hörður mætir bókalaus í skólann á mánudag. Halli fer með honum og ég fer með Sólrúnu í hennar skóla. Hún á ekki að mæta fyrr en eftir hádegi og fær sínar bækur í skólanum.
OG á mánudagsmorgun á internet kallinn loksins að koma. Mikið rosalega hlakka ég til :). Ég ætla rétt að vona að hann verði kominn áður en við Sólrún förum í skólann.
Hörður Tryggvi fékk leyfi til að gista hjá Sölva og við notuðum tækifærið og fórum í búðina að kaupa afmælisgjafir. Þegar við vorum þar hringdi Silvía mamma Sölva og sagði að Hörður væri greinilega með ofnæmi því hann væri orðinn vel rauðeygður og klæjaði í nefið og augun. Svo hún skutlaði honum til baka þegar við komum heim. Hann fékk ofnæmistöflu og lagaðist við það. Svo sofnuðu þeir saman í Harðar rúmi vinirnir, dauðþreyttir eftir langan dag. Erfiðlega gekk að koma Sölva á fætur og út í bíl...ótrúlegt hvað maður getur verið þreyttur.

Fimmtudagur 11. september

Í dag hringdi ritarinn og sagðist hafa fengið númer fyrir okkur og við gætum farið á löggustöðina en nú væri búið að breyta þannig að við þyrftum fyrst að fara og borga skráningargjaldið í banka og koma með kvittun fyrir því. Það er greinilega alltaf verið að breyta þessu því hún sagði að þetta hefði ekki verið svona í síðustu viku. :) Svo aftur fórum við með taxa niður í Marbella, náðum í númerin og fórum á staðinn. Þar var biðröð og við máttum bíða til kl 13:30 eða svo eftir að röðin kæmi að okkur. Hörður notaði tækifærið og fór í svona myndabás og tók af sér myndir til að láta skólann hafa. En svo bara héngum við og biðum.
Það var reyndar spennandi að sjá þegar gömul kona í hjólastól kom. Það er lyfta fyrir hjólastóla við stigann, svo græja sem hjólastóllinn fer upp á og rennur svo eftir sleða á veggnum upp. Þau dunduðu sér sennilega í hálftíma að reyna að láta þetta virka, enginn virtist kunna á þetta svo ekkert gekk. Það endaði með því að starfsmaður kom út og tók fingraför konunnar á stéttinni fyrir utan. :)
Þegar röðin var loksins komin að okkur kom í ljós að við þyrftum að hafa fæðingarvottorð fyrir krakkana, sem við vorum ekki með. Svo við gátum sótt um kennitölu fyrir mig og Halla en ekki fyrir krakkana. Við fengum nú sem betur fer stimpil á eitthvað blað þannig að við getum farið með þetta án þess að þurfa að bíða aftur í röðinni. Hagstofan sendir okkur svo fæðingarvottorðin í tölvupósti og venjulegum pósti svo vonandi verður hægt að klára þetta af sem fyrst.
Við vorum reyndar búin að fá skrítin fæðingarvottorð frá FSA. Þar stóð að ég og Halli hefðum fætt krakkana og mín kennitala notuð bæði fyrir mig og hann. Og til viðbótar er Hörður víst jafngamall Sólrúnu, fæddur 1996. Starfsmaðurinn sem gerði þetta var greinilega ekki alveg vaknaður. Samt hafði viðkomandi vandað sig við að hafa þetta bæði á ensku og íslensku.
Við dunduðum okkur svo við að læra spænsku eftir að við komum heim.
Hörður Tryggi prófaði nefspreyið hennar Tinnu sem hún gleymdi hér. Hann er greinilega komin með ofnæmi fyrir einhverju. Ég held það séu blómin, því þegar við förum framhjá stöðum með miklum blómailm þá hnerrar hann eins og honum sé borgað fyrir það. Það vill til að við eigum fullt af ofnæmislyfjum svo þetta ætti að bjargast hjá okkur.

Miðvikudagur 10. september

Fórum snemma af stað með leigubíl til að sækja númerin okkar sem ritarinn á lögfræðiskrifstofunni ætlaði að sækja fyrir okkur. Þegar þangað kom þá kom í ljós að hún fékk ekki númer. Það var svo löng röð á undan henni. Það þýðir að á morgun prófar hún aftur og hringir í okkur nógu snemma til að við séu ekki að fara alla leið til Marbella fyrir ekki neitt.
Svo við breyttum þessu í verslunarferð. Fórum í apótek og keyptum fyrir og eftir moskítókrem og einhvern vökva sem maður setur í samband við innstungu sem á að fæla moskító í burtu.
Svo fundum við matarbúð (svona Bónus verslun) og fylltum kerruna mína fínu af mat og drykk. Náðum okkur svo í leigubíl til að komast heim. Sölvi kom svo í pössun og var það sem eftir var dags.
Hér eru rimlahurðir fyrir öllum gluggum. Í dag komu málarar til að mála þá og útihurðina. Við létum þá hafa lykla að húsinu svo þeir gætu málað á meðan við værum að heiman. Lögfræðingurinn í næsta húsi sagðist hafa gert það þegar þeir máluðu hjá henni og að það væri allt í lagi.
María (lögfræðingurinn) sá um að túlka fyrir okkur samskiptin við málarana og svo erum við náttúrulega með snilldar túlk 8 ára gamlan í pössun. :) Annars er ég góð með orðabókina. Skrifa bara miða til þeirra.

Þriðjudagur 9. september

Vorum snemma á fótum og röltum í vinnuna til Halla. Þaðan fórum við fyrst að skrá Sólrúnu í sinn skóla og svo Hörð í sinn. Engin smá eyðublaðahrúga sem þetta fólk vill fá. Skipulagið er samt ekki komið meira á hreint en það að ekki var hægt að fá uppgefið hvenær þau ættu að mæta. Það kemur í ljós í lok þessarar viku og skólinn byrjar á mánudag.
Við röltum heim í svaka hita um hádegi og Sölvi var með í för. Sölvi er sonur Silvíu sem vinnur með Halla og er ári yngri en Hörður Tryggvi. Hann verður í pössun hjá okkur þangað til skólinn byrjar. Þeir skemmtu sér svo konunglega strákarnir við að leika í dag. Urðu svolítið blautir á því að fylla vatnsblöðrur. En það er nú ekkert mál í þessum hita. Og á morgun er það biðröðin langa. Þurfum að fara á löggustöðina niðri í Marbella til að fá spænska kennitölu. Þetta er biðraðaferli. Fyrst fer ritari lögfræðingsins snemma í fyrramálið í biðröð til að fá númer fyrir okkur. Svo sækjum við númerið til hennar og förum í biðröð að bíða eftir að okkar númer verði kallað upp. Þetta getur tekið upp í fjórar klst í bið.

Mánudagur 8. september

Vorum bara heima...þvo allan sandinn frá því í gær. Svo var veröndin líka þrifin.

Sunnudagur 7. september

Fórum á ströndina, gekk bara vel að rata. Fengum okkur Burger King á leiðinni heim. Allt í sandi, krakkarnir grófu hvort annað og reyndar Halla líka á kaf í sand.
Laugardagur 6. september
Við ákváðum að klára af gömlu íbúðina í dag og nota tækifærið að fara á netið þar. Röltum af stað með tvær tölvur og sundföt fyrir krakkana svo þau gætu farið í sundlaugina hjá blokkinni, sem er bæði með grunnum og djúpum enda. Þetta er tæplega hálftíma rölt, meðal annars framhjá kúrekanum sem fylgist með nautahjörðinni sinni hér beint utan við húsið okkar , á stóru grænu svæði. Við erum sem sagt í stórborg með sveitina við hliðina á okkur.
Þegar við komum í íbúðina kom í ljós að búið var að loka fyrir netið :). Við (aðallega Halli samt) þrifum íbúðina og krakkarnir fóru smá stund í sund. Laugin er frekar köld og það var svolítill vindur (heitur reyndar) en samt var þeim kalt svo þau voru nú ekki lengi í sundinu. Ég fór með þeim því þau mega helst ekki vera ein.
Þegar íbúðin var til, röltum við í Halla vinnu til að fara smá á netið og löbbuðum svo heim.
Hörður og Halli ákváðu að prófa sundlaugina hér, en það var orðið skýjað og frekar kalt, þannig að það var líka stutt sundferð.
Svo var kominn tími til að fara í búðina. Eftir nokkra umræðu var ákveðið að fara niður í Puerto Banus í búð. Við röltum af stað, fórum yfir hraðbrautina á göngubrú. Þegar þangað kom ákvað Halli að það væri styttra að fara í aðra búð, svo við fórum í undirgöng undir hraðbrautina. Eftir smá rölt komumst við að því að Halli var ekkert of viss um hvert hann var að fara...svo við röltum til baka og fórum mína leið (ég er nefnilega svo sniðug að lesa á skilti :). Á endanum komumst við í búðina og versluðum í matinn. Gott var að hafa kerruna mína fínu með til að hlaða pokunum á, ekkert sérlega spennandi að halda á 5 lítra vatnsbrúsa og gosi langar leiðir.
Sennilega höfum við verið á röltinu í samtals 2,5 klst.í dag. Þannig að það er ekki hægt að segja annað en maður sé farin að stunda líkamsrækt á fullu. :)
Og á morgun er ætlunin að labba aðeins meira...fara á ströndina og leggjast í sólbað. Maður verður nú að worka tanið, gengur ekki að vera skjannahvítur þegar maður býr á Costa Del Sol.

Föstudagur 5. september

Byrjuðum daginn á að hitta lögfræðinginn okkar,hana Maríu. Hún er að sjá um allar skráningar fyrir okkur, skráningu á aðsetri, sækja um spænska kennitölu og fleira. Hún er meira svona ráðgjafi og reddari. Yndisleg spænsk kona sem á heima hér í næsta húsi. Gott að hafa svona nágranna. Krökkunum fannst nú svolítið skrítið að þurfa sjálf að skrifa undir eitthvað svona blað en þau þurftu að undirrita flutninginn til Spánar.
Við eyddum svo deginum í að þvo meira og ganga frá dótinu úr pökkunum okkar sem við fengum frá Íslandi í dag. Svo fengum við símamanninn í heimsókn til að tengja heimasímann okkar. Sem þýðir að nú geta allir hringt í okkur heima....við bíðum spennt eftir fyrsta símtalinu. Númerið er 952-819-321 með 0034 á undan.
Um helgina er svo planið að klára að ganga frá gömlu íbúðinni og skreppa jafnvel á ströndina aftur.

Fimmtudagur 4. september

Þvoðum stórþvott í dag...nóg af þvotti alltaf. En hér er gaman að þvo. Maður hengir út og áður en næsta vél er búin er búið að taka inn, brjóta saman og setja inn í skáp.
Það er víst dónaskapur að biðja Spánverja að fara úr skónum. Hér ganga allir um á útiskónum svo gólfin voru aðeins of skítug fyrir Sólrúnar smekk. Hún er greinilega ekki vön að vera svona skítug á tánum. Svo við skúruðum allt húsið og þurrkuðum af. Svaka fínt hjá okkur.
Svo prófuðu krakkarnir nýju sundlaugina...hún vakti ekkert sérstaka lukku því hún er bara djúp, og vel djúp eftir því sem Sólrún segir. Henni fannst hún lengi á leiðinni upp eftir að hafa stokkið út í.
Um kvöldið var ákveðið að fara í La Canada sem er stór verslunarmiðstöð hér og redda mat í ísskápinn og lökum og handklæðum sem vantaði. Halli fékk lánaðan bíl með GSP tæki. Þrátt fyrir það þá tókst okkur að villast aðeins svo ferðalagið varð frekar langt, en við komumst á leiðarenda klukkutíma áður en átti að loka. Keyptum fullt í matinn og stórundarleg lök...til að troða allri dýnunni í og renna fyrir ;) skil ekki alveg tilganginn.

Miðvikudagur 3. september

Fluttum í nýja húsið og ég og krakkarnir tókum upp úr töskum og gengum frá. Fengum gesti fyrsta daginn þegar Silvía og Sölvi komu með pabba hennar Silvíu með sér. Sáum strax köttinn sem vill endilega halda áfram að vera í fæði hér í þessu húsi þó hann eigi heima annarsstaðar. Fyrri eigendur gáfu honum að borða hér líka svo hann lætur sér ekki segjast þó við reynum allt til að hræða hann í burtu.

03 september 2008

Nýja húsið

Brjálað að gera í dag. Erum á fullu að pakka niður og ætlum að flytja á nýja staðinn eftir hádegi. Heimilsfangið er:
Villas del Rodeo 14,
29660 Nueva Andalucia, Marbella,
Malaga, Spain.
Svo er planið að taka upp úr töskum, prófa nýju sundlaugina og jafnvel elda eitthvað skemmtilegt heima í staðinn fyrir að borða úti. (þó það kosti nú ekki mikið).
Við verðum ekki í netsambandi heima næstu daga, en Halli er náttúrulega í sambandi í vinnunni. Vona að það taki ekki langan tíma að tengja okkur.
Búið í bili.

02 september 2008

Á Spáni

Jæja, þá erum við komin á leiðarenda öll fjölskyldan. Ég, Hörður og Sólrún mættum á svæðið á fimmtudaginn. Halli kom og sótti okkur á flugvöllinn í Malaga og keyrði okkur í okkar nýja heimili. Okkur finnst heitt, erum búin að læra að ganga hægt og rólega. Hörður er meira að segja orðinn eins og ekta spánverji, vill frekar vera skuggamegin á götunni.
Við erum búin að fara í bæinn, fara á ströndina og prófa sundlaugina í garðinum nokkru sinnum.
Og í morgun skrifuðum við undir leigusamning, fáum glæsilegt 3 svefnherbergja og 3 baðherbergja raðhús með heitum potti og sundlaug í garðinum. Gætum flutt þangað núna EN við erum svo háð internetinu að við verðum eiginlega að bíða eftir að búið sé að tengja það. Spánverjar eru ekkert að flýta sér þannig að það getur tekið fimm daga að tengja netið ;(
Gott í bili, hér má sjá íbúðina http://www.banusas.com/pb/wp_5d2889fd/wp_5d2889fd.html