23 desember 2008

Gleðileg jól

Jólin koma á morgun. Við erum að verða búin að gera allt eins og það á að vera á jólunum í Smárahlíðinni. Allar hefðir í hávegum hafðar, búið að baka laufabrauð og uppáhaldskökurnar okkar. Gengur bara ljómandi vel að borða þær líka:)

Hörður var í eina viku að ná krökkunum í bekknum í stærðfræði. Sólrún tók öll prófin í desember og gekk bara ágætlega, á reyndar eftir að fá einkunnir. Það er bara eins og þau hafi ekkert farið.

En við óskum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Gott í bili

04 desember 2008

Akureyri - gott að koma heim :)

Þá erum við komin alla leiðina heim í Smárahlíðina og lífið farið að ganga sinn vanagang. Krakkarnir komnir í Glerárskólann, Bowen vinna mín að komast í gang og Halli dundar í sinni vinnu að vanda.
Krakkarnir fóru í sína gömlu bekki. Sólrún má velja hvort hún tekur prófin núna í desember eða ekki. Það eru engin próf hjá Herði fyrr en eftir áramót.

Besti vinur Harðar sagðist hafa grátið af gleði þegar hann vissi að Hörður væri að koma aftur :)

Hörður virðist bara vera vel hress, hóstar lítið, hnerrar ekkert, hefur meira úthald og lítur betur út. Hann var frekar slappur úti á Spáni, alltaf eitthvað hóstandi, hnerrandi, rauðeygður, með astmahljóð og fölur. Svo þetta er allt að koma hjá honum :)

Þegar ég verð búin með verkefnin mín og prófið á þriðjudag er stefnan að taka kassana upp úr geymslunni og koma hlutunum í sitt fyrra horf, allavega að einhverju leyti. Við tókum bara upp úr töskunum þegar við komum en ekki meira en það. Enda nóg annað að gera við að koma okkur af stað hérna á Akureyrinni.

Svo eru jólin víst að koma og ýmislegt sem þarf að gera fyrir þau, sérstaklega að baka uppáhaldskökurnar okkar.

Gott í bili

01 desember 2008

Íslandið góða

Við erum komin heim. Spánarævintýrinu lokið í bili af ýmsum ástæðum sem ekki verða tíundaðar á netinu. Við komum til landsins á laugardagskvöld og vorum komin undir sæng á Skaganum kl 01.30 eftir 18 tíma ferðalag.

Við lögðum af stað frá Marbella klukkan átta að morgni, tókum leigubíl til Malaga. Þar sáum við hluta af nýju flugstöðvarbygggingunni sem þar er. Skrítið, en þar á sveimi voru litlir fuglar, fljúgandi um allt, og yfir borðin á veitingarstaðnum. Svo flugum við til London og lentum þar um eitt að staðartíma. Við biðum á vellinum fram að kvöldmat þar sem okkar vél til Íslands átti ekki að fara fyrr en 19:30. Það voru sko 70 sæti laus í vélinni og allir komnir um borð eldsnemma. Við lentum svo í Keflavík um 22:30. Tinna kom og sótti okkur á fínu Hondunni og við brunuðum á Skagann.

Nú er verkefnavinna og próf framundan hjá mér og svo í framhaldinu komum við okkur fyrir, hefjum jólaundirbúning á fullu og að koma minni vinnu í Bowen og TFT í gang (heilsubot.com). Halli heldur áfram með sitt fyrirtæki, skrifa texta, prófarkarlesa, þýða og fleira. (Harla.is)

Þar sem nóg verður að gera á næstunni þá er ég ekkert viss um að mikið verði bloggað hér.
Gott í bili

09 nóvember 2008

Bloggleti

Úps, maður nennir bara ekkert að blogga þessa dagana!!

Lítið nýtt að frétta, lífið gengur sinn vanagang.

Reyndar hefur heldur dregið úr mínum gönguferðum. Nú erum við nefnilega farin að passa Sölva eftir skóla sem þýðir að Silvía kemur og sækir Hörð á morgnanna og skutlar honum í skólann og kemur svo með báða strákana hingað seinnipartinn.
Svo nú verð ég að fara að finna mér aðra leið til að ná burt þessum fáu aukakílóum sem eftir eru :)

Ég rölti á pósthúsið á fimmtudaginn að sækja afmælispakka handa Herði Tryggva frá Helgu systur minni. Þetta var þessi fíni pakki með miða sem á stóð hvað væri í pakkanum. Og hvað haldið þið...það stóð SÚKKULAÐI á honum meðal annars. Mér fannst nú ekkert sérstaklega auðvelt að hafa þennan pakka hérna óopnaðan. Beið spennt eftir að Hörður kæmi heim úr skólanum. Og í þessum fína flotta pakka var þetta líka dásamlega fína NÓA-SÍRÍUS SUÐUSÚKKULAÐI...uummmm, svo dásamlega gott. Við vorum ekki lengi að klára það. Og ég hringdi í Helgu til að segja henni að hún væri uppáhalds systir mín.
Öllum er frjálst að taka þátt í uppáhaldskeppninni....við tökum endalaust við Nóa -Síríus :) :)

Þegar Hörður var veikur misstum við af því að fara á foreldrafund í hans skóla. Við komumst að því í síðustu viku að vegna veikinda kennara þá er hann ekki lengur í aukatímum í spænsku. Hann hélt að nýji afleysingakennarinn hans væri bara svona leiðinleg að leyfa honum ekki að fara í aukatímana. Við áttum víst að skrá hann í aukatíma á þriðjudögum og fimmtudögum eftir skóla. En þegar við loksins vorum búin að frétta þetta þá var orðið fullt í nóvember svo hann kemst ekki fyrr en í desember. Óttalegt vesen.

Nú er farið að kólna hjá okkur. Spánverjar virðast mikið notast við arinn eða stromp eins og Belinda vinkona mín kallaði það. Maður finnur alveg brunalyktina hérna úti á kvöldin, greinilega verið að kynda með arni víða. Við notum nú bara rafmagnskyndinguna enn sem komið er.
Gott í bili

02 nóvember 2008

Nýr mánuður...

Jæja nú erum við búin að vera hér í rúma tvo mánuði í sólinni og blíðunni og úrhellisrigningunni.

Það hefur ekki rignt neitt smá undanfarið. Nóg að gera við að reyna að þurrka föt og skó.

Á föstudaginn þegar við Hörður vorum að labba upp brekkuna þá gátum við alveg séð hvernig árfarvegir myndast, það streymdi niður götuna. Halli tók myndir í skólanum hans Harðar þar sem vatnið fossaði fram af steyptum vegg og af fótboltavellinu sem breyttist í sundlaug. (set þær inn aðeins síðar :( )
Annar skemmtum við okkur við það fyrripart vikunnar að taka samræmdu prófin. Bæði Sólrún og Hörður hefðu átt að taka samræmd próf í október. Við fundum eldri próf á netinu og þau tóku þau óundirbúið. Og einkunnirnar þeirra voru sko meira en glæsilegar. Hörður fékk 9,6 í stærðfræðinni og rúmlega níu í íslensku, Sólrún fékk rúmlega níu í stærðfræði og um átta í íslensku :) Mér finnst þetta snilld, eins og ég var að segja þeim, ef þau hefðu nú lært fyrir þessi próf eins og þau hefðu gert heima þá hefðu þau ábyggilega fengið a.m.k. 11. Þetta eru bara snillingar !!

Spænskan hjá þeim er öll að koma, þau eru farin að slá um sig með spænskum setningum sem við foreldrarnir vitum ekkert hvað þýða.

Það er farið að kólna svolítið hérna hjá okkur, hefur alveg farið niður í 6 stiga hita snemma á morgnanna, en hlýnar nú jafnvel upp í 20 þegar líður á daginn. Við þurfum að fara að verða okkur út um eldivið í arininn til að hlýja svolítið húsið. Annars erum við með rafmagnskyndingu sem allir segja okkur að við megum ekki nota ef mikið því rafmagnið sé svo dýrt. Svo í staðinn fyrir að hafa kyndinguna of mikið í gangi þá bara situr maður með teppi utanum sig....það er nú líka alltaf svo notalegt.
Gott í bili

26 október 2008

Same old same old

Lítið að gerast þessa dagana, lífið gengur sinn vanagang. Halli að vinna, krakkarnir í skólanum og að reyna að læra svolítið heima, ég að læra eða dunda við gæluverkefnið mitt.

Hér er sól og rigning til skiptis, enginn snjór og færðin bara nokkuð góð. Hún verður reyndar stundum slæm á enginu í rigningunni. Leirinn hleðst utaná skóna og það tekur sko tíma að hreinsa þá.

Ég litaði á mér hárið í morgun, það átti að verða kastaníu BRÚNT en varð kastaníu RAUTT...vel rautt...það vill til að maður upplitast í sólinni...ætli ég verði þá ekki bara með appelsínugult hár eftir smá tíma. ;)

Vetrartíminn kom í nótt, þannig að nú fáum við að sofa aðeins lengur á morgnanna. Halli og Sólrún fara á fætur kl 6 að íslenskum tíma í stað kl 5 og við Hörður förum á fætur kl 7 að íslenskum tíma í stað kl 6. Allt annað líf fyrir svefnpurrku eins og mig.

Gott í bili

20 október 2008

Fleiri myndir

Búin að setja inn októbermyndir hér til hliðar. Þar má sjá hluta af dýragarðinum okkar, mynd af gestum frá Íslandi (rafhlöðurnar í myndavélinni þurftu endilega að vera búnar), sundferð og gönguferð í afmælisveislu á laugardaginn.

Eðlan sem er í loftinu náðist á endanum og var hleypt út.

Annars erum við bara búin að vera í rólegheitunum. Ég að læra eins og svo oft áður, Halli að þýða eins og oft áður.

Krakkarnir eru í fríi í skólanum í dag. Spánverjar, sérstaklega á suður Spáni skilst mér eru duglegir í að færa frídaga sem lenda á helgi yfir á mánudag. Þeir eru sko ekkert að sleppa fríum. Vinkonan okkar í búðinni (sem eldar stundum fyrir okkur) segir að það séu hvergi fleiri frídagar á ári en á suður Spáni ;).

Silvía og Sölvi komu í gær og borðuðu með okkur KFC og Sölvi gisti hjá okkur.

Sólrún fór á fimmtudag í heimsókn til Önnu, dönsku skólasystur sinnar.

Annars er bara ekkert í fréttum, maður er meira að segja hættur að nenna að fylgjast
með kreppufréttum. Ákvað bara að fyrst búið er að fá vilyrði IMF þá sé þetta allt komið í lag og kreppuvesenið búið. Nú þarf bara að líta á björtu hliðarnar og vonast til að leikskólagæjarnir fari bara aftur í sandkassann þar sem þeir geta ekki gert neinn óskunda (nema kannski henda sandi í augun hver á öðrum).
Gott í bili